Borgarráð samþykkir víðtækar forvarnir gegn ofbeldi barna og ungmenna
Borgarráð hefur samþykkt innleiðingu og áframhaldandi útfærslu tillagna sem miða að því að efla forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna og ungmenna í Reykjavík. Tillögurnar koma úr skýrslu stýrihóps um forvarnir og aðgerðir, útgefinni í nóvember 2025 og höfðu áður farið fyrir skóla- og frístundaráð.
Efla stuðning við börn í viðkvæmri stöðu
Samþykktar eru sex tillögur stýrihópsins, þar á meðal að efla stuðning við börn í viðkvæmri stöðu í leikskólum, innleiða leiðsagnarnám í alla grunnskóla borgarinnar og styrkja nýsköpun í foreldrasamstarfi í fjórða bekk grunnskóla. Þá er lögð áhersla á að efla félags- og tilfinningafærni í öllu starfi með börnum og ungmennum, koma á fót sértæku hópastarfi fyrir börn í viðkvæmri stöðu á aldrinum 10–12 ára og halda áfram innleiðingu tengsla- og áfallamiðaðrar nálgunar í allri þjónustu við börn og ungmenni.
Borgarráð leggur jafnframt til að tillaga um stuðningsteymi vegna barna á flótta með mikla áfallasögu verði samþykkt með þeirri breytingu að teymin verði skipuð starfsfólki Reykjavíkurborgar sem þegar starfar innan kerfisins.
Fleiri tillögur til frekari skoðunar
Tillaga um námskeiðið „Strákar spjalla“ í grunnskólum verður tekin til frekari skoðunar í samhengi við afgreiðslu velferðarráðs á tengdum tillögum um þjálfun starfsfólks og markmið fræðslu námskeiðsins. Jafnframt verður kostnaður skóla- og frístundasviðs vegna verkefnisins metinn og málið tekið til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
Þá verður tillögu um stuðning við Hinsegin félagsmiðstöð einnig vísað til skoðunar við fjárhagsáætlunargerð fyrir 2027. Í því sambandi er borgarstjóra falið að taka upp viðræður við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og mennta- og barnamálaráðuneytið um mögulega sameiginlega fjármögnun verkefnisins. Sama málsmeðferð mun gilda um tillögu um aukinn stuðning við foreldra leikskólabarna í formi uppeldisnámskeiðisins Föruneyti barna og byggir á uppeldisráðgjöf leikskólakennara í viðkomandi leikskóla.
Með samþykktinni er stigið mikilvægt skref í átt að heildstæðari og markvissari forvörnum gegn ofbeldi og auknum stuðningi við börn, fjölskyldur þeirra og fagfólk í borgarkerfinu.