Borgarráð - Fundur nr. 5824
Borgarráð
Ár 2026, fimmtudaginn 7. maí, var haldinn 5824. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:12. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Alexandra Briem, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Friðjón R. Friðjónsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Kjartan Magnússon, Líf Magneudóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Hulda Hólmkelsdóttir, Róbert Marshall og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 29. apríl sl. á auglýsingu á tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir Ártúnshöfða svæði 2C, Þórðarhöfða, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25110152
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Ártúnshöfðinn er mikilvægt uppbyggingarsvæði til að vinna á húsnæðisvanda borgarinnar og mikilvægt að svæðið verði þróað áfram. Þó er rétt að taka fram að huga þarf sérstaklega að hljóðvist og birtu í ljósi þess að þarna stendur til að byggja eitt þéttasta svæði borgarinnar. Mikilvægt er að betri mynd sé gefin af hljóðvist á reitnum á næsta stigi umfjöllunar og ákvörðunar. Jafnframt er nauðsynlegt að mótuð verði skýr og raunhæf bílastæðastefna sem tekur mið af þörfum íbúa, gesta og starfsemi. Með hliðsjón af framangreindu styðja borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins að tillagan verði auglýst til að kalla fram athugasemdir hagaðila á svæðinu.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn situr hjá vegna þess þéttleika sem deiliskipulagið felur í sér.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs sama dag á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Leirtjörn vestur, 1. áfanga, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24060028
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs sama dag á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðarinnar nr. 27 við Fiskislóð, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25100348
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs sama dag, á auglýsingu á tillögu um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðanna nr. 33, 35 og 37 við Fiskislóð, ásamt fylgiskjölum,
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25110116
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. apríl 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. apríl 2026 á breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 8-14 við Austurstræti, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24070045
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins styðja framlagða deiliskipulagsbreytingu um að heimila íbúðir á efri hæðum við Austurstræti. Mikilvægt er þó að tryggja að samspil íbúa og núverandi starfsemi verði í sátt við umhverfið, enda er um að ræða svæði þar sem umfangsmikil veitinga- og skemmtanastarfsemi fer fram. Reynslan sýnir að skipulag af þessu tagi getur skapað árekstra ef ekki er vel staðið að undirbúningi. Því er brýnt að hljóðvist verði tryggð með fullnægjandi hætti og jafnframt að loftgæði í íbúðum verði þannig að ekki sé nauðsynlegt að opna glugga eða hurðir, til að lágmarka líkur á ónæði og ágreiningi í framtíðinni.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 4. maí 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili umhverfis- og skipulagssviði að hefja innkaupaferli vegna hönnunar við nýjan skóla í Vogabyggð, Skólabrú – Fleyvang.
Kostnaðaráætlun er 500 m.kr.- Kl. 10:00 tekur Helga Þórðardóttir sæti á fundinum.
Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Brynjari Darra Baldurssyni, Daníel Benediktssyni, Guðna Guðmundssyni, Grétu Þórsdóttur Björnsson og Kristjönu Ósk Birgisdóttur sem taka sæti með rafrænum hætti. USK25070043
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Um er að ræða sérlega metnaðarfulla uppbyggingu á glæsilegum leikskóla, grunnskóla, íþróttahúsi, frístundaheimili og félagsmiðstöð fyrir Vogabyggð, en inni í verkefninu er einnig falleg brú og almenningstorg. Saman munu þessi mannvirki mynda fagurt kennileiti og verða að ákveðinni þungamiðju í hverfinu. Þessi hönnun var niðurstaða stórrar hönnunarsamkeppni sem kynnt var í apríl 2024. Hér er veitt samþykki fyrir því að hefja hönnunarferlið sem mun taka þrjú ár og síðan taki við sex ára framkvæmdatími. Kostnaður verkefnisins mun því dreifast á 9-10 ár ef að líkum lætur. Kostnaðaráætlun er í góðu samræmi við aðra stóra framkvæmd í austurhluta borgarinnar, þ.e. uppbyggingu leikskóla, grunnskóla, sundlaugar, íþróttamiðstöðvar og menningarmiðstöðvar í Dalskóla.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði gegn tillögunni. Fullur skilningur er á því að mikil þörf er á nýjum skóla í Vogabyggð og mikilvægt að innviðir fylgi uppbyggingu hverfisins. En þó hönnunin sé glæsileg er um að ræða eitt stærsta og flóknasta uppbyggingarverkefni Reykjavíkurborgar á síðari árum sem lagt er fram aðeins átta dögum fyrir borgarstjórnarkosningar. Óábyrgt er af fráfarandi meirihluta að ýta af stað verkefni af þessari stærðargráðu á þessum tímapunkti, þegar ljóst er að enn á eftir að vinna mikla forvinnu og greiningu varðandi aðstæður og kostnað. Heildarkostnaður er áætlaður tæpir 15 milljarðar króna með vikmörkum upp á allt að 19,3 milljarða króna. Á sama tíma liggur enn ekki fyrir fullnægjandi greining á umfangi mengaðs jarðvegs á svæðinu þrátt fyrir að förgun hans sé einn stærsti kostnaðarliður verkefnisins. Sérstaklega verður að fara afar varlega við munna Elliðaáa þar sem um er að ræða viðkvæmt náttúrusvæði og rask á menguðum jarðvegi getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir lífríki og vatnsgæði. Best færi á því að ný borgarstjórn tæki afstöðu til verkefnis af þessari stærðargráðu að loknum kosningum og nánari greiningu á umfangi verkefnisins.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn situr hjá vegna þess að hér er verið að hefja ferli við hönnun húss sem afar óljóst er hver endanlegur kostnaður verður. Efri vikmörk hljóða upp á hátt í 20 milljarða króna. Teikningin af þessu húsi er afar falleg og metnaðarfull. Mikilvægt er að sýna metnað í byggingu grunnskóla og sýna íbúum og starfsfólki að þau innviðagjöld sem greidd voru fjármagni innviði í hverfinu. Framsókn telur brýnt að skólinn rísi sem fyrst og hefði viljað sjá samanburð á hagkvæmari kosti sem gæti risið fyrr en 2035.
Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:
Miðað við fyrirliggjandi gögn mun byggingin Fleyvangur – Skólabrú einkennast af framúrstefnulegum íburði og bruðli. Húsið verður augljóslega afar dýrt í byggingu og rekstri og margt bendir til að það sé uppskrift að kostnaðarlegu stórslysi, m.a. vegna legu og lögunar hússins. Kostnaðaráætlun byggingarinnar nemur nú 14.865 milljónum króna. Efri vikmörk nema 19.300 milljónum króna en neðri vikmörk 13.400 milljónum. Samkvæmt reynslu er eðlilegt að horfa til efri vikmarka a.m.k. Byggingarframkvæmdir verða væntanlega fjármagnaðar með dýrum lánum, sem velt verður yfir á næstu kynslóð. Sú spurning vaknar hvort stjórnendur borgarinnar hafi ekkert lært af kostnaðarsömum mistökum, sem gerð hafa verið í byggingarmálum borgarinnar á undanförnum árum, ekki síst á sviði skólamála. Bruðlinu virðist ekki ætla að linna miðað við verkefni sem eru á teikniborðinu. Mörg dæmi sýna þó að hægt sé að reisa glæsilegar og metnaðarfullar skólabyggingar án þess að kostnaður fari úr böndunum. Verðlaunasamkeppni virðist oft hafa þær afleiðingar í för með sér að kostnaður opinberra bygginga hleypur upp úr öllu valdi. Oft virðast arkitektar líta á slík verkefni sem tækifæri til að reisa sjálfum sér framúrstefnulegt minnismerki. Hagkvæmni og notagildi virðist þá ekki skipta máli, hvorki byggingarkostnaður viðkomandi húss, né rekstrarkostnaður þess til framtíðar.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf regluvarðar Reykjavíkurborgar, dags. 5. maí 2026, varðandi meðhöndlun trúnaðargagna.
Halldóra Káradóttir og Ólöf Marín Úlfarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22020050
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar samstarfsflokkanna þakka regluverði Reykjavíkurborgar fyrir að taka af festu á þeim alvarlega atburði að ársreikningi Reykjavíkurborgar og fylgigögnum hans var lekið til fjölmiðla fyrir lögbundna birtingu. Ársreikningur Reykjavíkurborgar er bundinn lögmæltri trúnaðar- og þagnarskyldu og teljast upplýsingarnar jafnframt til innherjaupplýsinga þar sem borgin er útgefandi skuldabréfa á skipulögðum markaði. Óheimil miðlun slíkra upplýsinga getur varðað refsingu samkvæmt lögum um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Leki af þessu tagi grefur undan trúverðugleika Reykjavíkurborgar gagnvart fjárfestum, eftirlitsaðilum og almenningi og brýtur gegn grundvallarsjónarmiðum um jafnræði markaðsaðila og ábyrga upplýsingagjöf. Fulltrúarnir telja mikilvægt að málið fái vandaða og faglega meðferð hjá þeim eftirlitsaðilum sem því hefur verið vísað til og að tryggt verði að sambærileg atvik endurtaki sig ekki. Fulltrúar samstarfsflokkanna í borgarráði lýsa sig reiðubúna til að heimila eftirlitsaðilum fullan aðgang að sínum tölvusamskiptum í tengslum við rannsókn málsins.
Fylgigögn
-
Lagðar fram tillögur borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, um viðauka við fjárhagsáætlun 2026.
Vísað til borgarstjórnar.Halldóra Káradóttir, Guðni Guðmundsson og Hróðný Njarðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26030008
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf velferðarsviðs dags. 6. maí 2026. sbr. samþykkt velferðarráðs sama dag um breytingar á tekjumörkum í reglum Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning.
Samþykkt.Rannveig Einarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. VEL26050005
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 5. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki eftirfarandi tillögur um uppbyggingu félagslegs húsnæðis og nýtingu eiginfjárframlags til Félagsbústaða : 1. Að nýting eiginfjárframlags Reykjavíkurborgar til Félagsbústaða fari fram samkvæmt útfærslu sem fram kemur í tillögum stjórnar Félagsbústaða. Kaupréttaríbúðir hafa forgang og skulu nýttar til hins ýtrasta áður en gripið er til kaupa á almennum markaði. Kaup á markaði verði bundin
þeim skilyrðum sem kveðið er á um í tillögu Félagsbústaða: lágmark 40% eigið fé, áhersla á íbúðir fyrir stærri fjölskyldur og fyrir einstaklinga með hreyfihömlun eða aðrar sérþarfir, þar á meðal í samstarfi við Brynju húsfélag ses. um sértækar íbúðir fyrir fjölskyldur með fötluð börn. Samhliða vinni velferðarsvið og Félagsbústaðir að útfærslu hvata fyrir leigjendur Félagsbústaða til að flytjast í íbúð af stærð sem hentar fjölskyldugerð, í því skyni að bæta nýtingu eignasafnsins og fjölga íbúðum sem lausar verða til úthlutunar. 2. Að ráðist verði í þróunarverkefni á sviði uppbyggingar félagslegs húsnæðis á vegum borgarinnar. Byggð verði tvö 15 íbúða fjölbýlishús með blandaðri búsetu, kjarna og almennum íbúðum, ásamt 20 þjónustuíbúðum í tengslum við lífsgæðakjarna. Samhliða þessari tillögu er lögð fram viljayfirlýsing borgarinnar um lóðir í Úlfarsárdal og á Kjalarnesi til verkefnisins. 3. Að skipaður verði starfshópur velferðarsviðs og Félagsbústaða sem skili borgarráði heildstæðri aðgerðaáætlun um þróun búsetuforma og endurskoðun þjónustuíbúða sbr. erindisbréf í fylgiskjali 5. Aðgerðaáætlunin taki samhliða til (a) þróunar fjölbreyttari búsetuforma fyrir ákveðna hópa fólks og (b) endurskoðunar núverandi þjónustuíbúða með hliðsjón af breyttum þörfum.Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Edda Björk Ragnarsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Sigrún Árnadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26050004
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja óábyrgt að meirihlutinn leggi fram svo umfangsmikla og stefnumarkandi tillögu um framtíð félagslegs húsnæðis aðeins níu dögum fyrir borgarstjórnarkosningar. Hér er um að ræða áform um milljarða skuldbindingar, ný uppbyggingarverkefni, breytingar á þjónustuíbúðum og víðtæka endurskipulagningu á starfsemi Félagsbústaða án þess að fyrir liggi fullmótuð framkvæmdaáætlun, raunhæft kostnaðarmat eða skýr forgangsröðun. Í stað þess að setja fullan þunga í nauðsynlega uppbyggingu fyrir fatlaða og aldraða er slík uppbygging gerð af afgangsstærð og nær öll áherslan sett á fjölgun félagslegra íbúða. Veigamiklar breytingar sem þessar eiga að fara til umfjöllunar hjá nýrri borgarstjórn að loknum kosningum en ekki keyrðar áfram í örvæntingu á lokadögum kjörtímabilsins.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn styður uppbyggingu félagslegs húsnæðis, sérstaklega fyrir fatlað fólk og tekjulágt eldra fólk. Framsókn hefur hinsvegar gagnrýnt hvernig meirihlutinn hefur sett kíkinn fyrir blinda augað þegar kemur að grunnrekstri Félagsbústaða. Mikilvægt er að ráðast í aðgerðir til þess að styrkja rekstur Félagsbústaða og gera hann sjálfbæran til lengri tíma. Aðferðin sem meirihlutinn beitir er hinsvegar að færa einfaldlega meiri fjármuni inn í félagið án þess að taka á vandanum og það er skammgóður vermir.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagða viljayfirlýsingu milli Reykjavíkurborgar og Félagsbústaða hf. vegna lóða og svæða á sextán lóðum og svæðum í Reykjavík fyrir allt að 321 íbúð. Viljayfirlýsingin er í samræmi við markmið húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar um fjölbreytt framboð húsnæðiskosta fyrir alla félagshópa og félagslega fjölbreytni innan hverfa, Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 og samningsmarkmið Reykjavíkurborgar á nýjum uppbyggingarsvæðum. Samhliða er veitt lóðarvilyrði fyrir allt að 24 íbúðum á tveimur lóðum að Nauthólsvegi 85-89, með áætlaðri úthlutun árið 2026. Samtals nær viljayfirlýsingin til allt að 345 íbúða á tímabilinu 2026-2032.
Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Edda Björk Ragnarsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Sigrún Árnadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26050009
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki eftirfarandi tillögur starfshóps samvinnuvettvangs til
höfuðs misnotkunar vinnuafls: 1. Að áfram verði byggt á samstarfi Reykjavíkurborgar og ASÍ með áherslu á skilvirkt og formlegt upplýsingaflæði milli aðila. 2. Að komið verði á og viðhaldið sameiginlegum samskiptapunktum (pósthólfum) hjá báðum aðilum til að tryggja samfellu og rekjanleika í samskiptum. 3. Að unnið verði áfram að því að bæta yfirsýn yfir helstu verkefni og samningsaðila Reykjavíkurborgar, eftir því sem við á, til að styðja við eftirlit. 4. Að verklag um viðbrögð við ábendingum og mögulegum brotum verði skýrt og samræmt. Lagt er til að vísa eftirfylgni tillagnanna til mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar.Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Halla Björg Evans og Kristjana Fenger taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS25070028
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu stýrihóps um málefni NEET hóps þess efnis að stofnaður verði samstarfshópur fagaðila þvert á starfsstaði borgarinnar, ríkisstofnanir og félagasamtök, með virkri þátttöku ungmenna. Hlutverk hópsins verði að samræma vinnubrögð og verkferla og bæta samvinnu og flæði milli aðila sem koma að þjónustu við ungt fólk í NEET-hópi. Jafnframt er lagt til að vísa því til nýrrar borgarstjórnar að skoða að skipaður verði öflugur verkefnahópur fagaðila og kjörinna fulltrúa til að halda áfram að gerð heildstæðrar stefnu og áætlunar Reykjavíkurborgar um stuðning við ungt fólk sem ekki er í vinnu, skóla né þjálfun/virkniúrræðum.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Guðný Maja Riba tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26020091
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki eftirfarandi tillögur í uppfærðri aðgerðaáætlun verkefnisins brúum bilið, dags. 22. apríl 2026. Markmið verkefnisins er að tryggja nægt og hentugt leikskólarými í Reykjavík til skemmri og lengri tíma. Tillögur: 1. Að uppfærð aðgerðaáætlun verkefnisins brúum bilið, dags. 22. apríl 2026, verði samþykkt. 2. Að fagsviðum, þ.e. umhverfis- og skipulagssviði og skóla- og frístundasviði verði veitt umboð til að setja sjö ný verkefni í formlegan undirbúningsfarveg, í samræmi við gildandi ferla Reykjavíkurborgar. Tilefni uppfærslunnar eru meðal annars lokanir deilda í eldri leikskólum vegna framkvæmda, endurmat einstakra verkefna í gildandi áætlun, auk nýrra forsendna sem tengjast íbúðauppbyggingu og aukinni eftirspurn eftir leikskólarými. Af þeim sökum er lagt til að aðgerðaáætlunin verði uppfærð og að ný verkefni verði sett í undirbúning. Í uppfærðri aðgerðaáætlun er lagt til að sjö ný verkefni fari í formlegan undirbúningsfarveg. Verkefnin eru öll á frumstigi og er gert ráð fyrir að frekari útfærsla, þar á meðal ákvörðun um rekstrarform, umfang og fjárhagslegar skuldbindingar, verði lögð fyrir borgarráð þegar undirbúningi einstakra verkefna vindur fram.
Samþykkt.
Steinn Jóhannsson og Ólafur Brynjar Bjarkason taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS22060148Fylgigögn
-
Fram fer kynning á stöðu innritunar í leikskóla Reykjavíkur árið 2026. MSS26010026
Steinn Jóhannsson og Ólafur Brynjar Bjarkason taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 28. apríl 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 27. apríl 2026, á tillögum stýrihóps um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna sem snúa að skóla- og frístundasviði, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 12:00 víkur Líf Magneudóttir af fundinum. MSS25020124
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Ofbeldi meðal og gagnvart börnum og ungmennum er ein af alvarlegustu áskorunum samtímans og kallar á skýr, samræmd og markviss viðbrögð af okkar hálfu. Fulltrúar samstarfsflokkanna í borgarráði fylgja hér eftir tillögum stýrihóps um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna, sem byggja á ítarlegri greiningu, víðtæku samráði og mati á stöðu mála. Þessi nálgun snýr að forvörnum, snemmtækri íhlutun og hröðum viðbrögðum þegar vandi kemur upp. Tillögurnar sem samþykkt er að setja í framkvæmd núna styðja við farsæld barna og betri borg fyrir börn. Jafnframt er lögð áhersla á að efla félags- og tilfinningafærni barna snemma, auka fræðslu um ofbeldi í nánu samstarfi við foreldra og skólasamfélagið. Sérstakt fagnaðarefni er tillagan um sértækt hópastarf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára í viðkvæmri stöðu. Starfið mun fara fram í fimm félagsmiðstöðvum þar sem þörfin er mest. Það er vitað að öflugt félagsstarf eykur vellíðan og minnkar ofbeldi og því er einstaklega ánægjulegt að auka félagsstarf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára. Með þessari ákvörðun í dag er tillögum fylgt eftir af festu, þannig að þær leiði til raunverulegra og varanlegra umbóta.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki samkomulag í hjálögðu minnisblaði frá starfshópi um
eignarhald íþróttamannvirkja á starfssvæði Knattspyrnufélagsins Vals á Hlíðarenda.Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt. MSS25120033Borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins styðja framlagt samkomulag og telja mikilvægt að með því sé verið að færa Knattspyrnufélaginu Val aukna vissu um framtíðaraðstöðu félagsins og áframhaldandi uppbyggingu á starfssvæði þess. Valur gegnir mikilvægu samfélagslegu hlutverki í hverfinu og ljóst að þörf er á áframhaldandi uppbyggingu innviða fyrir öflugt og vaxandi íþrótta- og félagsstarf. Þó ber að benda á að heildarumfang og heildarkostnaður verkefnisins liggur ekki fyrir og veruleg óvissa er enn um fjárhagslegar skuldbindingar borgarinnar til framtíðar. Mikilvægt er að frekari ákvarðanir um uppbyggingu, framkvæmdir og eignafærslur verði teknar á grundvelli skýrra kostnaðarmats, forgangsröðunar og fjárhagslegs svigrúms borgarinnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjölum og trúnaðarmerktum fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagt samkomulag á milli Gróðrarstöðvarinnar Markar og Reykjavíkurborgar um framtíðaraðstöðu Gróðrarstöðvarinnar Markar í Stjörnugróf 18, Reykjavík, í samræmi við erindisbréf samningateymisins sem lagt var fyrir borgarráð 21. ágúst 2025. Forsenda samkomulagsins er ákvörðun borgarráðs Reykjavíkurborgar frá 10. júlí 2008 um fyrirheit um stækkun athafnasvæðis Knattspyrnufélagsins Víkings. Með samkomulaginu hefur Reykjavíkurborg efnt að fullu ákvörðun borgarráðs frá 2008 að samþykkja fyrirheit um stækkun athafnasvæðis Víkings.
- Kl. 12:20 víkur Þórdís Lóa Þórhallsdóttir af fundinum.
- Kl. 13:05 tekur Líf Magneudóttir sæti á fundinum.
- Kl. 14:00 víkja Líf Magneudóttir og Ebba Schram af fundi og Theódór Kristjánsson tekur sæti.Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Helena Rós Sigmarsdóttir og Auður Inga Ingvarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26040071
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Mikill vilji er til þess að tryggja áframhaldandi rekstur gróðrarstöðvar í borginni og sérstaklega á þessum fallega og gróðursæla stað. Eins er mikilvægt að standa við gefin loforð og tryggja viðunandi aðstöðu til íþróttaiðkunar. Með þessu samkomulagi er komið til móts við Gróðrarstöðina Mörk, semfær afnotaleyfi af hluta landsins til ársins 2050. Gróðrarstöðin heldur því, að meðtöldu landi innan bæjarmarka Kópavogs, 6,7 hekturum lands af þeim 7,7 sem hún starfar nú á. Víkingur fær afhentan hluta lands til uppbyggingar íþróttamannvirkja í tvennu lagi, í lok árs 2026 og árið 2032. Með þessu teljum við að málinu sé lokið með besta mögulega hætti miðað við aðstæður.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggjast ekki gegn samkomulagi borgarinnar við eigendur Gróðrarstöðvarinnar Markar og telja jákvætt að komin sé niðurstaða í langvarandi óvissu um framtíð Markar. Mikilvægt er að tryggt sé að starfsemi Markar geti áfram verið á svæðinu til lengri tíma og að starfsemin hafi að minnsta kosti verið tryggð afnot af hluta svæðisins til ársins 2050. Gróðrarstöðin hefur um áratugaskeið verið mikilvægur þáttur og hluti af sérkennum Fossvogsdals og mikilvægt að breytingar fari fram hóflega í áföngum. Mikilvægt er að horft verði vandlega til þeirrar framkvæmdar og þeirra álitaefna sem felast í uppskiptingu lóðarinnar og afnotafyrirkomulagi hluta lóðarinnar. Tryggja þarf að starfsemi Markar búi við raunhæf rekstrarskilyrði á því svæði sem eftir stendur og að ekki skapist síðar ágreiningur um réttindi eða nýtingu svæðisins. Einnig þarf að gæta að því að verið sé að leysa málið til framtíðar en ekki velta vanda og kostnaði áfram til komandi ára.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn telur mikilvægt að tryggja meðalhóf í ákvörðunum borgarinnar gagnvart Gróðrarstöðinni Mörk. Framsókn hefur áhyggjur af fordæmisgildi þessarar ákvörðunar gagnvart öðrum lóðahöfum í borginni sem gert er að víkja af lóðum þar sem lóðasamningar eru útrunnir. Betur hefði farið á því að fá nánari áhættugreiningu á þessari ákvörðun, lagalega rýni á fordæmisgildi auk ítarlegs kostnaðarmats á þeim verðmætum sem um ræðir. Í ljósi þess hversu málið er flókið hefði verið gagnlegt að fá það fyrst inn til kynningar og taka síðan ákvörðun að vandlega athuguðu máli. Framsókn situr því hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjölum og trúnaðarmerktum fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagt samkomulag á milli Reykjavíkurborgar og Knattspyrnufélagsins Víkings um yfirfærslu mannvirkja, uppbyggingu, þróun og nýtingu athafnasvæðis félagsins.
Samþykkt.
Helena Rós Sigmarsdóttir og Auður Inga Ingvarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26040070Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins styðja framlagt samkomulag og telja mikilvægt að með því sé verið að færa Knattspyrnufélaginu Víkingi aukna vissu um framtíðaraðstöðu félagsins og framtíðaruppbyggingu á starfssvæði þess. Víkingur gegnir mikilvægu samfélagslegu hlutverki í hverfinu og ljóst að þörf er á áframhaldandi uppbyggingu innviða fyrir ört vaxandi starfsemi félagsins. Þó ber að benda á að heildarumfang og heildarkostnaður verkefnisins liggur ekki fyrir og veruleg óvissa er enn um fjárhagslegar skuldbindingar borgarinnar til framtíðar. Mikilvægt er að frekari ákvarðanir um uppbyggingu, framkvæmdir og eignafærslur verði teknar á grundvelli skýrs kostnaðarmats, forgangsröðunar og fjárhagslegs svigrúms borgarinnar.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Gott er að vinnu við gerð samninga við Víking um yfirfærslu eignarhalds og uppbyggingu á aðstöðu félagsins í Fossvogi og Safamýri sé að ljúka. Brýnt er að ráðast í viðhald mannvirkja og fjárfesta í nýrri aðstöðu fyrir Víking.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki tillögur sem lagðar eru til í hjálagðri skýrslu starfshóps vegna aðstöðumála Ungmennafélagsins Fjölnis. Tillögurnar hafa verið kostnaðarmetnar allt að 21 m.kr. á ári. Þá er einnig lagt til að borgarráð endurnýi umboð starfshópsins til að rýna framtíðarmálefni félagsins og hópnum verði falið að gera skýrslu og leggja til kostnaðarmetnar tillögur er lúta að framtíðaraðstöðu Fjölnis.
- Kl.14:05 víkur Kjartan Magnússon af fundinum og Marta Guðjónsdóttir tekur þar sæti.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Helga Friðriksdóttir og Elín Hrefna Ólafsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS25120005
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins styðja framlagðar tillögur og telja mikilvægt að með þeim sé verið að bregðast við alvarlegum aðstöðuvanda knattspyrnudeildar Fjölnis. Fjölnir gegnir mikilvægu samfélagslegu hlutverki í Grafarvogi og ljóst að núverandi aðstaða stendur ekki undir þörfum ört vaxandi starfsemi. Mikilvægt er að gripið verði til aðgerða til skamms tíma samhliða því að unnið verði að framtíðarlausn fyrir félagið. Þó liggur ekki fyrir endanleg ákvörðun um framtíðarskipan aðstöðumála eða heildarkostnað uppbyggingar og því þarf að byggja frekari ákvarðanir á skýru kostnaðarmati og fjárhagslegu svigrúmi borgarinnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki þær tillögur sem lagðar eru til í skýrslu starfshóps til að skoða aðstöðumál Glímufélagsins Ármanns. Tillögurnar hafa verið kostnaðarmetnar á um 36,5 m.kr. á ári auk þess sem lögð er til ein tillaga sem felur í sér eins skiptis kostnað sem er áætlaður 1 m.kr. Þá er einnig lagt til að borgarráð endurnýi umboð starfshópsins til að rýna framtíðarmálefni félagsins og hópnum verði falið að gera skýrslu og leggja til kostnaðarmetnar tillögur er lúta að framtíðaraðstöðu Glímufélagins Ármanns.
Samþykkt.
Helga Friðriksdóttir og Elín Hrefna Ólafsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS25120004
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins styðja framlagðar tillögur og telja mikilvægt að með þeim sé verið að bæta aðstöðu Glímufélagsins Ármanns og mæta þeirri óvissu sem ríkt hefur um starfsemi félagsins um langt skeið. Ármann gegnir mikilvægu samfélagslegu hlutverki í Laugardal og ljóst að þörf er á frekari úrbótum á aðstöðu félagsins, sérstaklega í Laugardalshöll. Þó ber að benda á að óvissa er enn um heildarkostnað og framtíðarskuldbindingar borgarinnar. Mikilvægt er að frekari ákvarðanir um uppbyggingu og samninga verði teknar á grundvelli skýrs kostnaðarmats og fjárhagslegs svigrúms borgarinnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 5. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki uppfærða útgáfu af græna planinu – Reykjavíkurstefnunni sem dregur upp framtíðarsýn borgarinnar til ársins 2030 og tengir
lykilstefnur og áætlanir borgarinnar við þá sýn.Greinargerð fylgir tillögunni.
Vísað til borgarstjórnar. MSS22030045
- Kl. 14:30 víkur Hulda Hólmkelsdóttir af fundinum og Eiríkur Búi Halldórsson tekur sæti.Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagða viljayfirlýsingu Reykjavíkurborgar við Félag
íslenskra náttúrufræðinga og Visku stéttarfélag háskólamenntaðra um uppbyggingu
íbúðarhúsnæðis í Reykjavík á næstu árum.Samþykkt með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. MSS26050002
Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúarnir styðja fjölbreytt framboð húsnæðis, en telja að úthlutun verðmætra þróunarlóða borgarinnar eigi ávallt að byggjast á opnum, gagnsæjum og málefnalegum forsendum. Í þessu máli liggur hvorki fyrir hvaða lóðir um ræðir, umfang uppbyggingarinnar né hvaða fjárhagslegu skuldbindingar felast í viljayfirlýsingunni.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagða viljayfirlýsingu Reykjavíkurborgar við Bjarg
íbúðafélag um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík á næstu árum.Samþykkt með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. MSS26050005
Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúarnir telja óeðlilegt að Reykjavíkurborg gefi fyrirfram viljayfirlýsingu um úthlutun fjölda verðmætra þróunarlóða án þess að fyrir liggi skýrari upplýsingar um umfang uppbyggingar, verðmæti lóða, fjárhagsleg áhrif eða forsendur verkefnisins. Um er að ræða stór og mikilvæg þróunarsvæði í borginni og mikilvægt að úthlutun þeirra byggist á gagnsæju og samræmdu ferli.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagða viljayfirlýsingu milli Reykjavíkurborgar og For Yoko Ono, dags. 10. október 2025, varðandi sameiginlegt markmið um samstarf við þróun og framkvæmd listaverkefnisins Peace House (Friðarskjól), sem er í samræmi við tillögu nr. 5 í skýrslu stýrihóps um framtíðarsýn fyrir Viðey sem lögð var fram og samþykkt í menningar- og íþróttaráði 29. nóvember 2025 og í borgarráði 4. desember 2025.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt. MSS26050001Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026:
Lagt er til að borgarráð samþykki að hefja endurskoðun á fyrirkomulagi ræstinga í stjórnsýsluhúsum Reykjavíkurborgar, þ.e. Borgartúni 12-14, Tjarnargötu 12 og í Ráðhúsi. Fyrsta skrefið í því verði að útbúa þarfagreiningu þar sem kerfisbundið skal farið yfir allar verklýsingar þrifa, ræstingaþörf og áætla réttan vinnutímafjölda við ræstingar. Jafnframt verður metinn heildarkostnaður á grundvelli raunhæfra forsenda, þar á meðal með hliðsjón af kröfum við sanngjarnar og félagslega ábyrgar vinnuaðstæður. Greiningin skal vera unnin í samræmi við innkaupareglur og innkaupastefnu borgarinnar. Þegar niðurstöður úttektaraðila liggja fyrir verði gögnin lögð fyrir borgarráð ásamt upplýsingum um núverandi fyrirkomulag til samanburðar, í þeim tilgangi að meta hvort haldið verði áfram með útboðsferli fyrir ræstingu stjórnsýsluhúsanna eða að Reykjavíkurborg ráði sjálf inn starfsfólk til þess að annast ræstinguna.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. MSS26050005Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Hér er augljóslega verið að reyna að þvinga fram þá niðurstöðu að ræstingum í stjórnsýsluhúsum borgarinnar verði innvistað en ekki boðin út. Útboð á þessari þjónustu eru mun hagkvæmari en að ráða fólk til borgarinnar til að sinna þessum verkefnum. Framsókn varar við þessari vegferð enda er mikilvægt að fara vel með skattfé og beina fjármunum í að bæta þjónustu við borgarbúa. Meirihlutinn ætti frekar að leita leiða til að hagræða í rekstri en að auka hallann á rekstri borgarinnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. maí 2026:
Lagt er til að umhverfis-og skipulagssviði verði heimilað að ráða þrjá sérfræðinga á deild skipulagsmála á skrifstofu skipulags- og byggingarmála tímabundið til þriggja ára. Laun starfsfólks verði færð af eignasjóði, kostnaðarstað 4200. Einnig er sviðsstjóra falið að skoða með hvaða hætti er hægt að efla verkefnastýringu á Ártúnshöfða sem er stærsta og flóknasta uppbyggingarsvæði í Reykjavík.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt. MSS26050011
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Fylgigögn
-
Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 29. apríl 2026 í máli nr. E-5941/2025. MSS25100182
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 5. maí 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að vísa aðgerðaáætlun lýðræðisstefnu 2026-2030 til frekara samráðs meðal sviða borgarinnar og að fjármagn fyrir hverfið mitt á árunum 2026-2027 verði nýtt í framkvæmd samsköpunarverkefnisins GreenInCities sem er í vinnslu í Breiðholti, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt. MSS24040172
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 5. janúar 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs 8. janúar 2026 og færð í trúnaðarbók, sbr. 5. lið fundargerðar borgarráðs frá 8. janúar 2026:
Lagt er til að borgarráð samþykki að útnefna Guðjón Friðriksson sem heiðursborgara
Reykjavíkurborgar.Greinargerð fylgdi tillögunni. MSS25120128
Fylgigögn
-
Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 28. apríl 2026, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Framsóknarflokksins um aðgerðir gegn verðbólgu og stýrivaxtahækkunum, sbr. 22. lið fundargerðar borgarráðs frá 19. mars 2026. MSS26030087
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kaup á niðurstöðum þjónustukönnunar Gallup, sbr. 16. lið fundargerðar borgarráðs frá 13. febrúar 2026. Einnig lögð fram umsögn þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 4. maí 2026. MSS26020065
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 16. og 30. apríl 2026. MSS26010008
-
Lögð fram fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 29. apríl 2026. MSS26010012
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. maí 2026.
9. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls 6 mál. MSS26050013
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26050012
Fylgigögn
-
Lagðar fram styrkumsóknir sem borist hafa borgarráði utan umsóknartíma, alls þrjár umsóknir.
Samþykkt að veita Reykjavik Global Foundation styrk að fjárhæð kr. 1.000.000.- vegna móttöku fyrir Heimsþing kvenleiðtoga.
Öðrum styrkumsóknum er hafnað. MSS25020031 -
Samþykkt að taka á dagskrá svohljóðandi tillögu borgarstjóra, dags. 6. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki að Bjarg íbúðafélag kt. 390916-0670, Kletthálsi 1, 110 Reykjavík verði nýr handhafi lóðarvilyrðis fyrir byggingarrétti á allt að 50 íbúðum við Leirtjörn vestur Úlfarsárdal í stað Leigufélags aldraðra hses, kt., 540818-0820.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt. MSS26050020Fylgigögn
-
Afgreiðsla og bókun undir þessum lið eru færðar í trúnaðarbók. MSS26040033
-
Samþykkt að taka á dagskrá svohljóðandi tillögu borgarstjóra, dags. 6. maí 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi uppbyggingarsamkomulag við Ríkissjóð Íslands, kt. 540269-6459, vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar, stækkunar á lóð og breyttrar nýtingar á lóðinni við Laugarnesveg 91, landeignarnr. L103934.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt. USK26030391Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn telur alls ekki tímabært að byggja 300 íbúðir á þessum reit í ljósi þess að grunnskólarnir í þessu skólahverfi eru yfirfullir af börnum og langir biðlistar eru eftir leikskólaplássum. Fyrst þarf að ráðast í endurgerð skólamannvirkja og ná stöðugleika í skólasamfélaginu áður en börnum er fjölgað í hverfinu. Samhliða þessu samkomulagi er ráðgert að byggja 220 íbúðir í Borgartúni og 90 íbúðir á Grensásvegi. Samtals um 600 íbúðir og þar sem að meðaltali eru 1,2 börn í hverri íbúð er fyrirætlun borgarinnar að fjölga um ríflega 600 börn í þessu skólahverfi. Það er ekki góð hugmynd.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúans Kjartans Magnússonar:
Borgarráð samþykkir að taka upp viðræður við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og dómsmálaráðuneytið um starfrækslu hverfislögreglustöðvar í Breiðholti í því skyni að styrkja löggæslu í borgarhlutanum. Stöðin verði starfrækt í anda svonefndrar samfélagslöggæslu og áhersla lögð á að tengja hana skólunum í hverfinu með jákvæðum hætti. Um yrði að ræða samstarfsverkefni ríkis og borgar og stefnt að því að Reykjavíkurborg sæi stöðinni fyrir húsnæði eins og gert var þegar hverfislögreglustöð var áður starfrækt í Breiðholti með góðum árangri. MSS25090069
Frestað.
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Lagt er til að nöfn á götum við nýja Landspítalann verði endurskoðuð með það fyrir augum að þær verði kenndar við heilbrigðisstarfsfólk sem lagt hefur stóran skerf af mörkum í þágu lækninga og hjúkrunar. MSS26050030
Greinargerð fylgir tillögunni.
Frestað.Fylgigögn
Fundi slitið kl. 15:12
Alexandra Briem Dóra Björt Guðjónsdóttir
Einar Þorsteinsson Friðjón R. Friðjónsson
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Sanna Magdalena Mörtudottir
Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Borgarráð 7.4.2026 - prentvæn útgáfa