Forsætisnefnd
Ár 2026, föstudaginn 8. maí, var haldinn 377. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:02. Viðstaddar voru Sanna Magdalena Mörtudóttir, Helga Þórðardóttir og Ragnhildur Alda María Villhjálmsdóttir Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Alexandra Briem og Marta Guðjónsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Sabine Leskopf. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer umræða um fyrirkomulag á fundi borgarstjórnar 26. maí 2026.
- Kl. 10:04 tekur Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti á fundinum með rafrænum hætti.
- Kl. 10:06 tekur Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir sæti á fundinum. MSS26010032 -
Lagt fram minnisblað forseta borgarstjórnar, dags. 5. maí 2026, varðandi reglulegt samtal forsætisnefndar og verkalýðshreyfingarinnar. MSS25030107
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 27. apríl 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 10. apríl 2026 á vísun á tillögu fulltrúa Framsóknarflokksins um aðgengi að borgarstjórnarfundum á streymisveitum til meðferðar forsætisnefndar. Einnig lagðar fram umsagnir þjónustu- og nýsköpunarsviðs frá 25. ágúst 2025 og 17. febrúar 2026 og umsögn skrifstofu borgarstjórnar frá 6. maí 2026.
Samþykkt og vísað til meðferðar þjónustu- og nýsköpunarsviðs. MSS25050139Forsætisnefnd og áheyrnarfulltrúar leggja fram svohljóðandi bókun:
Forsætisnefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til meðferðar þjónustu- og nýsköpunarsviðs í hefðbundinn farveg þar sem verkefnistillaga er skilgreind í samræmi við vinnureglur verkefnaráðs þjónustu og nýsköpunarsviðs. Forsætisnefnd finnst mikilvægt að koma þessari tillögu í framkvæmd.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins um upplýsingaspjald í Ráðhúsinu sbr. 8. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 13. mars. Einnig lagt fram svar skrifstofu borgarstjórar dags. 28. apríl 2026. MSS25050140
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða um að fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna fái áheyrnarrétt í fleiri fagráðum, sbr. 6. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 13. mars 2026 og 5. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 10. febrúar 2026. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjórnar, dags. 22. apríl 2026.
Frestað MSS26020042 -
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 6. maí 2026, varðandi breytingar á samþykkt um kjör og starfsaðstæður kjörinna fulltrúa, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt með atkvæðum fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands, Flokks Fólksins og Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Framsóknar sátu hjá. MSS23010278Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um breytingu á 63. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, sbr. 8. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 27. febrúar 2026 og 10. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 17. apríl 2026.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins dregur tillöguna til baka. MSS22080219Fylgigögn
-
Lögð fram að nýja tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að laun fyrstu varaborgarfulltrúa falli niður sitji hann hvorki í nefnd né ráði, sbr. 7. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 27. febrúar 2026 og 11. lið fundargerðar forsæstisnefndar frá 17. apríl 2026.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins dregur tillöguna til baka. MSS23010278Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um breytingu á III. kafla samþykktar um kjör og starfsaðstæður kjörinna fulltrúa, sbr. 4. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 30. janúar 2026 og 9. lið fundargerðar forsæstisnefndar frá 17. apríl 2026.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins dregur tillöguna til baka. MSS23010278Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 8. maí 2026, varðandi stöðu á endurskoðun lögreglusamþykktar Reykjavíkurborgar. MSS24090007
- Kl. 11:07 víkja Magnea Gná Jóhannsdóttir og Sabine Leskopf af fundi.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 11:08
Sanna Magdalena Mörtudottir Helga Þórðardóttir
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð forsætisnefndar 07.05.2026 - Prentvæn útgáfa