16188 Hólabrekkuskóli – Hús 3, endurgerð, EES útboð

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Hólabrekkuskóli – Hús 3, endurgerð, EES útboð nr. 16188.

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Hólabrekkuskóli stendur við Suðurhóla 10, 111 Reykjavík. Hús 3 hefur staðið að mestu autt í nokkurn tíma vegna rakaskemmda. Húsið er tvær hæðir, steypt og einangrað að innan. 
Um er að ræða byggingarleyfisskylda framkvæmd þar sem til stendur meðal annars að einangra og klæða húsið að utan með álklæðningu, endurnýja glugga og hurðir, innanhússfrágangur og breyting á innra skipulagi, endurnýja þak og byggja yfir inngarð. Búið er að rífa innanhúss að hluta til.
Á fyrstu hæð verða tvær kennslustofur, smíðastofa, matsalur, salerni, geymslur og tæknirými. Á annarri hæð verða fjórar kennslustofur, fjögur vinnuherbergi, salerni, tæknirými, fatahengi og fjölnotarými.

Áætluð lok framkvæmdatíma: 31. desember 2027.

Vettvangsskoðun : Hólabrekkuskóli, Suðurhólum 10, 111 Reykjavík : 5. maí 2026, kl. 10:00. Mæting við aðalinngang skólans að norðanverðu, húsi 2.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00: þann 22. apríl .  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 27. maí 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda