Söngvavor í Hörpu

Leikskólabörn syngja lög Dr. Gunna í Eldborg í morgun.
Leikskólabörn syngja lög Dr. Gunna í Eldborg í morgun.

1.300 leikskólabörn, fimm tónlistarskólar, 117 tónlistarnemar og 73 hljómsveitarnemar flytja tónlist eftir Dr. Gunna - Gunnar Hjálmarsson í útsetningum Haraldar Vignis Sveinbjörnssonar í Eldborg í Hörpu í dag.

Börnin eru búin að vera að æfa lög Dr. Gunna í vetur og syngja nokkur vel valin lög eftir hann í Eldborgarsalnum. Það er mikil eftirvænting meðal barnanna og þau voru mjög prúð og stillt á meðan á atriðinu stóð og sungu fullum hálsi.

Börnin prúðbúin og stillt á sviðinu.
Börnin prúðbúin og stillt á sviðinu.

Söngvavor er flutt fjórum sinnum yfir daginn af mismunandi hópum barna frá öllum leikskólum Reykjavíkurborgar. Tónleikarnir eru kl. 10:00, 11:30, 13:30 og 15:00. Og Eldborgarsalurinn er þéttsetinn af foreldrum, ömmum, öfum, frænkum og frændum. 

Eldborgarsalur börnin á sviði og foreldrar, ömmur, afar, frædur og frænkur horfa á.
Eldborgarsalur börnin á sviði og foreldrar, ömmur, afar, frædur og frænkur horfa á.

Tónleikarnir eru meðal fastra dagskrárliða á Barnamenningarhátíð og alveg einstakt að sjá börnin, sem eru á sjötta ári, syngja af innlifun á sviðinu og unga tónlistarfólkið sér um undirspil.

Börnin syngja við undirleik ungra tónlistarmanna úr tónlistarskólum í borginni
Börnin syngja við undirleik ungra tónlistarmanna úr tónlistarskólum í borginni

Söngvavor er samvinnuverkefni Tónskóla Sigursveins, Tónskólans í Reykjavík, Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Allegro Suzukitónlistarskóla, Tónskóla Eddu Borg, 62 leikskóla í Reykjavík og Barnamenningarhátíðar í Eldborgarsal Hörpu.

Dr. Gunni var heiðraður í lok dagskrár.
Dr. Gunni var heiðraður í lok dagskrár.

Næstu daga verður boðið upp á fjölbreytta viðburði á Barnamenningarhátíð og allt ókeypis.

Öll velkomin!