Rán Flygenring með sýningu og smiðjur í tilefni af UNESCO viðurkenningu

Rán Flygenring við Vesturbæjarlaug og verk eftir hana í glugganum
Rán Flygenring við Vesturbæjarlaug

Í tilefni af því að íslensk sundlaugarmenning hefur verið skráð á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns stendur mynd- og rithöfundurinn Rán Flygenring fyrir sýningu og baðteiknismiðjum í þremur sundlaugum í Reykjavík, í samstarfi við Reykjavíkurborg.

Sýningin byggir á bók Ránar, Sketching Bathing in Iceland, þar sem hún fangar íslenska baðmenningu í teikningum. Rán ferðaðist eitt sumar vítt og breitt um landið, dýfði sér í laugar, lón og náttúrupolla og skrásetti upplifunina í myndum.

Valdar myndir úr bókinni prýða nú glugga og anddyri Vesturbæjarlaugar, Sundhallar Reykjavíkur og Dalslaugar í Úlfarsárdal. Sýningin stendur út maímánuð og gefur sundlaugagestum færi á að kynnast sundlaugarmenningu landsins frá nýju og listrænu sjónarhorni.

Ein myndanna á sýningu Ránar Flygenring í Vesturbæjarlaug
                                   Ein myndanna á sýningu Ránar Flygenring í Vesturbæjarlaug

Samhliða sýningunni mun Rán halda tvær baðteiknismiðjur fyrir sundáhugafólk á öllum aldri á Barnamenningarhátíð, þar sem þátttakendur eru hvattir til að upplifa og skrá eigin sundlaugaupplifun á skapandi hátt. Fyrri smiðjan fer fram í Dalslaug miðvikudaginn 22. apríl og sú  síðari í Ævintýrahöllinni í Borgarbókasafninu Gerðubergi laugardaginn 25. apríl.

Öll velkomin!

Nánari upplýsingar um dagskrá Barnamenningarhátíðar