Minnismerki um kvennabaráttuna rís í Hljómskálagarðinum

Venus var borin enn á ný í tilefni af fyrsta maí á kvennaárinu í fyrra, 2025, en í þetta sinn fór hún fremst í flokki. Mynd: Jón Gautur Hannesson. Jón Gautur Hannesson.
styttan Venus borin af konum í kröfugöngu 1.maí á kvennaárinu 2025. Tekið framan á þær, á Laugavegi, þær halda á styttunni.

Minnismerki um kvennabaráttuna verður reist í Hljómskálagarðinum. Mun það styðja við sjálfsmynd Reykjavíkurborgar sem jafnréttisborg, heiðra sögu og framlag Rauðsokkuhreyfingarinnar og baráttusögu kvenna fyrir jafnrétti, félagslegu réttlæti og jöfnuði í samfélaginu.

Minnismerkið verður reist í samstarfi við fulltrúaráð verkalýðshreyfingarinnar í Reykjavík, í samræmi við viljayfirlýsingu þess efnis frá því í október á síðasta ári. Minnismerkið, sem myndlistarkonan Eva Ísleifs hannar, er endurgerð Venusar eða Sáttarinnar sem var gerð af Jóni Benediktssyni fyrir leikmynd Messíönu Tómasdóttur fyrir leiksýninguna Lýsiströtu árið 1970, leikstjóri var Brynja Benediktsdóttir. Styttan var svo fengin að láni 1. maí 1970 þegar konur á rauðum sokkum ákváðu að fylkja liði í kröfugöngu verkalýðsins í Reykjavík, en sá viðburður markaði upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar.

Áformað er að minnismerkið verði reist austast í Hljómskálagarðinum og verði rúmir tveir metrar á hæð. Teymi á vegum Reykjavíkurborgar sem samanstendur af fulltrúum Listasafns Reykjavíkur og umhverfis- og skipulagssviðs ásamt fulltrúa frá verkalýðshreyfingunni í Reykjavík, vinnur að nánari útfærslu og eftirfylgni verkefnisins að höfðu samráði við önnur svið Reykjavíkurborgar og aðra hagaðila eins og við á.

Tillaga borgarstjóra.

Styttan Venus borin á öxlum kvenna í kröfugöngu á Laugavegi 1.maí 1970.
Kröfuganga niður Laugaveg, 1. maí 1970. Konur bera Venusarstyttuna og krefjast jafnréttis. Þær sem sjást halda undir styttuna eru Einarlína Erla Ársælsdóttir, Þuríður Magnúsdóttir, Messíana Tómasdóttir, Guðrún Friðbjörnsdóttir, Hildur Hákonardóttir og Edda Óskarsdóttir. Maðurinn til hægri er Þór Vigfússon. Mynd: Jón Þorleifsson/ Ljósmyndasafn Reykjavíkur.