Minnismerki um kvennabaráttuna rís í Hljómskálagarðinum
Minnismerki um kvennabaráttuna verður reist í Hljómskálagarðinum. Mun það styðja við sjálfsmynd Reykjavíkurborgar sem jafnréttisborg, heiðra sögu og framlag Rauðsokkuhreyfingarinnar og baráttusögu kvenna fyrir jafnrétti, félagslegu réttlæti og jöfnuði í samfélaginu.
Minnismerkið verður reist í samstarfi við fulltrúaráð verkalýðshreyfingarinnar í Reykjavík, í samræmi við viljayfirlýsingu þess efnis frá því í október á síðasta ári. Minnismerkið, sem myndlistarkonan Eva Ísleifs hannar, er endurgerð Venusar eða Sáttarinnar sem var gerð af Jóni Benediktssyni fyrir leikmynd Messíönu Tómasdóttur fyrir leiksýninguna Lýsiströtu árið 1970, leikstjóri var Brynja Benediktsdóttir. Styttan var svo fengin að láni 1. maí 1970 þegar konur á rauðum sokkum ákváðu að fylkja liði í kröfugöngu verkalýðsins í Reykjavík, en sá viðburður markaði upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar.
Áformað er að minnismerkið verði reist austast í Hljómskálagarðinum og verði rúmir tveir metrar á hæð. Teymi á vegum Reykjavíkurborgar sem samanstendur af fulltrúum Listasafns Reykjavíkur og umhverfis- og skipulagssviðs ásamt fulltrúa frá verkalýðshreyfingunni í Reykjavík, vinnur að nánari útfærslu og eftirfylgni verkefnisins að höfðu samráði við önnur svið Reykjavíkurborgar og aðra hagaðila eins og við á.