Hlutfall nagladekkja 42,5%

Svifryk

Nýjustu talningar sýna að notkun nagladekkja er áfram svipað og undanfarin ár á þessum árstíma en þó örlítið hærra en á síðasta ári. Nagladekkjatímabilinu er nú lokið og eru ökumenn hvattir til að skipta yfir á önnur dekk.

Talning fór fram miðvikudaginn 4. mars síðastliðinn. Niðurstöður sýna að 42,5% ökutækja voru á nagladekkjum en 57,5% á öðrum dekkjum. Hlutfallið er lítillega lægra en í síðustu talningu 21. janúar þegar það mældist 43,9%.

Þegar litið er til fyrri ára má sjá að hlutfallið er í takt við þróun síðustu ára á sama tíma, þó það sé nú örlítið hærra en í fyrra. Þann 5. mars 2025 voru 39,6% ökutækja á nagladekkjum. Fyrir tveimur árum var hlutfallið 38,1%, fyrir þremur árum 39,7% og fyrir fjórum árum 40,0%.

Nagladekk slitna á malbiki og auka svifryk í borginni sem hefur áhrif á loftgæði og heilsu íbúa. Með því að skipta yfir á ónegld vetrardekk eða sumardekk þegar aðstæður leyfa geta ökumenn lagt sitt af mörkum til að bæta loftgæði í Reykjavík.

Næsta talning á hlutfalli nagladekkja er áætluð miðvikudaginn 15. apríl.