Kennsla í skólaþorpinu í Laugardal fer vel af stað

Mynd tekin inn í bekk í nýja Skólaþorpinu í Laugardal.

Stemningin hefur verið góð meðal nemenda og starfsfólks sem fluttu inn í skólaþorpið í Laugardal miðvikudaginn 8. apríl. Það voru 5. og 6. bekkur Laugarnesskóla sem hófu skólastarfið á nýjum stað eftir páskafrí.

Í skólaþorpinu eru komin tíu hús sem nýtast elstu tveimur árgöngum skólans, alls níu bekkjum. Eitt húsanna er nýtt sem sérkennslurými og fyrir starfsmannaaðstöðu. Húsin henta vel fyrir þessa aldurshópa og eru björt, rúmgóð og vel búin.

Fleiri hús og aðalbygging væntanleg í haust

Í haust munu sex kennsluhús til viðbótar bætast við og verða húsin þá 16 alls. Samhliða verður reist 900 fermetra aðalbygging þar sem verða eldhús, matsalur, skrifstofur, kaffistofa starfsfólks, heimilisfræðistofa auk fjögurra kennslustofa.

Björn Gunnlaugsson skólastjóri Laugarnesskóla segir húsin henta vel fyrir skólann, þau séu björt, rúmgóð og vel búin. „Þegar þessar viðbætur verða komnar er stefnt að því að öll starfsemi Laugarnesskóla flytjist tímabundið úr núverandi skólabyggingu sem á að gangast undir umfangsmiklar endurbætur,“ segir Björn. Til viðbótar við skólaþorpið verður einnig kennt í sjö lausum kennslustofum á lóð Laugarnesskóla.

Loftmynd af Skólaþorpinu í Laugardal.

Nauðsynlegt að flytja skólastarf og fara í heildstæðar endurbætur

Elsti hluti skólahússins er um 90 ára gamall og hefur síðustu ár verið reynt að bregðast við vanda vegna rakaskemmda og myglu og var orðið ljóst að allt skólastarf þyrfti að flytjast úr húsinu svo hægt væri að ráðast í heildstæðar viðgerðir á byggingunni.

Björn segir síðustu vikur hafa verið krefjandi fyrir starfsfólk skólans því flytja þurfti alla starfsemi á skömmum tíma. „Kennslustofur voru tæmdar fyrir páskaleyfi, flutningar fóru fram í dymbilviku og skipulagsdagur var haldinn þriðjudaginn eftir páska. Þá var húsnæði tekið í gagnið svo nemendur gætu mætt í fullbúin kennslurými strax á fyrsta degi.“

Björn segir bæði starfsfólk og nemendur hæstánægð með skólaþorpið. „Nemendur hafa tekið breytingunum fagnandi, sýna bæði gleði og spenning og skólalóðin hefur notið mikilla vinsælda.“

Hljóðvist og lýsing til fyrirmyndar

Sá hluti skólaþorpsins sem er kominn í notkun samanstendur af fimm húsum sem áður voru við Sæmundarskóla. Þau hús hafa verið yfirfarin og í þau hefur verið sett loftræstikerfi. Hin fimm húsin eru ný og voru flutt til landsins eftir smíði erlendis.
„Hljóðvist, lýsing og loftræsting eru til fyrirmyndar og undirstrika stjórnendur að hér sé um vandað og vel útfært kennsluumhverfi að ræða, en ekki bráðabirgðalausn,“ segir Björn að lokum.

Mynd tekin inn í bekk í nýja Skólaþorpinu í Laugardal.