Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar

Börn að leik í Laugardalslaug

Samkvæmt tillögu um lengri opnunartíma sundlauga í Reykjavík yfir sumartímann verða sundlaugar borgarinnar opnar til klukkan 22:00 um helgar frá 1. júní til 31. ágúst 2026. Tillagan var samþykkt á fundi menningar -og íþróttaráðs í síðustu viku.

Markmiðið er að bæta þjónustu við íbúa og samræma opnunartíma betur við lengri útivistartíma barna yfir sumarið.
Tillagan er þannig í raun sumaropnun og í takt við útivistartíma barna sem er lengdur yfir sumartímann. Frá 1. maí -1. september mega börn 12 ára og yngri vera úti til klukkan 22:00 og 13-16 ára börn vera úti til klukkan 24:00.