Heilbrigðisnefnd
Árið 2026, fimmtudaginn 16. apríl kl. 11:05, var haldinn 172. fundur heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Hjálmar Sveinsson, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Birkir Ingibjartsson, Einar Sveinbjörn Guðmundsson og fulltrúi samtaka atvinnulífsins, Ólafur Jónsson. Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Sandra Hlíf Ocares. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Tómas G. Gíslason, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Guðjón Ingi Eggertsson, Helgi Guðjónsson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Magnea Lillý Friðgeirsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram afgreiðslubréf forsætisnefndar dags. 7. apríl 2026 og verklagsreglur, fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar og beiðnir borgarfulltrúa um aðgang að gögnum dags. 27. mars 2026. MSS23090170
Fylgigögn
-
Fram fer umræða og upplýsingar um stöðu mála um áform um breytingar á heilbrigðiseftirliti. HER26010001
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Flokks fólksins, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins:
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur tekur undir þær áhyggjur sem fram koma í umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Þær eru í meginatriðum samhljóða gagnrýni og athugasemdum frá heilbrigðiseftirlitum á landsvísu, sveitarfélögum á landinu og Samtökum íslenskra sveitarfélaga. Svo virðist sem fyrirhugaðar breytingar byggi á misskilningi og oftúlkun á tilmælum ESA um stöðu regluverks og eftirlits á sviði heilbrigðismála. Samráð við heilbrigðiseftirlitin og sveitarfélögin sé takmarkað og ekki hafi verið brugðist á neinn hátt við þeim umsögnum og athugasemdum sem þegar hafa komið fram í málinu. Betur færi á að tekin yrðu smærri skref til að tryggja aukna skilvirkni á þessu sviði fremur en alger kerfisbreyting.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samtaka atvinnulífsins:
Fulltrúi Samtaka atvinnulífsins vísar til fyrri bókana sinna á fundum Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 11. september og 19. febrúar sl. Ákvörðun ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra er fagnað. Það er áréttað að mikilvægt er að útfærsla og framkvæmd breytinga verði tekin föstum tökum og tryggt verði að Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun takist á við breytt hlutverk.
-
Lögð fram til samþykktar, uppfærð Almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi. HER26010001
Samþykkt. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi Samtaka atvinnulífsins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á afturköllun á álímingu á bíl við Staðarbakka 8. HER26010001
-
Fram fer kynning á úttekt ESA á opinberu eftirliti með matvælum úr plönturíkinu með tilliti til örvera. Einnig er lögð fram skýrsla ESA dags. 20. júní 2025. HER26010001
Fylgigögn
-
Fram fer umræða á fyrirhugaðri úttekt ESA í júní nk. á opinberu eftirliti með upplýsingum á matvælum. HER26010001
-
Lögð fram umsögn Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur dags. 30. mars 2026 um skipulagslýsingu Ármúla - Hallarmúla - Suðurlandsbrautar, sbr. mál nr. 259/2026 í Skipulagsgátt. HER26010001
Fylgigögn
-
Lögð fram umsögn Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur dags. 30. mars 2026 um Sætún, sbr. mál nr. 264/2026 í skipulagsgátt. HER26010001
Fylgigögn
-
Lögð fram umsögn Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur dags. 30. mars 2026 um Saltvík, sbr. mál nr. 248/2026 í Skipulagsgátt. HER26010001
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 13. mars 2026, 19. mars 2026, 26. mars 2026, 1. apríl 2026 og 10. apríl 2026. HER26010001
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 12:14
Hjálmar Sveinsson Aðalsteinn Haukur Sverrisson
Birkir Ingibjartsson Einar Sveinbjörn Guðmundsson
Sandra Hlíf Ocares Ólafur Hvanndal Jónsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 16. apríl 2026