Heilbrigðisnefnd - Fundur nr. 172

Heilbrigðisnefnd

Árið 2026, fimmtudaginn 16. apríl kl. 11:05, var haldinn 172. fundur heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Hjálmar Sveinsson, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Birkir Ingibjartsson, Einar Sveinbjörn Guðmundsson og fulltrúi samtaka atvinnulífsins, Ólafur Jónsson. Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Sandra Hlíf Ocares. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Tómas G. Gíslason, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Guðjón Ingi Eggertsson, Helgi Guðjónsson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Magnea Lillý Friðgeirsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram afgreiðslubréf forsætisnefndar dags. 7. apríl 2026 og verklagsreglur, fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar og beiðnir borgarfulltrúa um aðgang að gögnum dags. 27. mars 2026. MSS23090170
     

    Fylgigögn

  2. Fram fer umræða og upplýsingar um stöðu mála um áform um breytingar á heilbrigðiseftirliti. HER26010001

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Flokks fólksins, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins:

    Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur tekur undir þær áhyggjur sem fram koma í umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Þær eru í meginatriðum samhljóða gagnrýni og athugasemdum frá heilbrigðiseftirlitum á landsvísu, sveitarfélögum á landinu og Samtökum íslenskra sveitarfélaga. Svo virðist sem fyrirhugaðar breytingar byggi á misskilningi og oftúlkun á tilmælum ESA um stöðu regluverks og eftirlits á sviði heilbrigðismála. Samráð við heilbrigðiseftirlitin og sveitarfélögin sé takmarkað og ekki hafi verið brugðist á neinn hátt við þeim umsögnum og athugasemdum sem þegar hafa komið fram í málinu. Betur færi á að tekin yrðu smærri skref til að tryggja aukna skilvirkni á þessu sviði fremur en alger kerfisbreyting.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samtaka atvinnulífsins:

    Fulltrúi Samtaka atvinnulífsins vísar til fyrri bókana sinna á fundum Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 11. september og 19. febrúar sl. Ákvörðun ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra er fagnað. Það er áréttað að mikilvægt er að útfærsla og framkvæmd breytinga verði tekin föstum tökum og tryggt verði að Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun takist á við breytt hlutverk.
     

  3. Lögð fram til samþykktar, uppfærð Almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi. HER26010001
    Samþykkt. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi Samtaka atvinnulífsins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
     

    Fylgigögn

  4. Fram fer umræða um ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á afturköllun á álímingu á bíl við Staðarbakka 8. HER26010001
     

  5. Fram fer kynning á úttekt ESA á opinberu eftirliti með matvælum úr plönturíkinu með tilliti til örvera. Einnig er lögð fram skýrsla ESA dags. 20. júní 2025. HER26010001
     

    Fylgigögn

  6. Fram fer umræða á fyrirhugaðri úttekt ESA í júní nk. á opinberu eftirliti með upplýsingum á matvælum. HER26010001
     

  7. Lögð fram umsögn Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur dags. 30. mars 2026 um skipulagslýsingu Ármúla - Hallarmúla - Suðurlandsbrautar, sbr. mál nr. 259/2026 í Skipulagsgátt. HER26010001
     

    Fylgigögn

  8. Lögð fram umsögn Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur dags. 30. mars 2026 um Sætún, sbr. mál nr. 264/2026 í skipulagsgátt. HER26010001
     

    Fylgigögn

  9. Lögð fram umsögn Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur dags. 30. mars 2026 um Saltvík, sbr. mál nr. 248/2026 í Skipulagsgátt. HER26010001
     

    Fylgigögn

  10. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 13. mars 2026, 19. mars 2026, 26. mars 2026, 1. apríl 2026 og 10. apríl 2026. HER26010001
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 12:14

Hjálmar Sveinsson Aðalsteinn Haukur Sverrisson

Birkir Ingibjartsson Einar Sveinbjörn Guðmundsson

Sandra Hlíf Ocares Ólafur Hvanndal Jónsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 16. apríl 2026