Vel heppnað málþing um Starling aðferðina í Gerðubergi
Málþing á vegum Hólabrekkuskóla og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands um markvissa orðaforðakennsluaðferðina Starling fór fram í Gerðubergi í vikunni og tókst einstaklega vel. Uppselt var á þingið fyrir páska sem um það bil 130 manns sóttu, sem sýnir mikinn áhuga á aðferðinni.
Hólabrekkuskóli verður leiðandi í innleiðingunni
Hólabrekkuskóli hefur innleitt Starling, eða Starra markvissa orðaforðaaðferð, í vetur í þremur árgöngum með mjög góðum árangri. Undirbúningur hófst með heimsóknum til Nottingham síðastliðið sumar þar sem aðferðin var kynnt í skólum, efnið íslenskað og kennsla hafin í haust.
Höfundar aðferðarinnar, Aaron Jordan og Dr. Emma Vardy, fluttu erindi ásamt Amelia Jöru Larimer ráðgjafa og Sólveigu Eddu Ingvarsdóttur, verkefnastjóra læsis og leiðtoga Starra í Hólabrekkuskóla. Málþingið vakti mikla lukku og hefur nú verið ákveðið að Hólabrekkuskóli verði leiðandi í innleiðingu aðferðarinnar hér á landi.