16279 Hlemmtorg norður og borgarlína um Hlemm, gatnagerð, lagnir og yfirborðsfrágangur. EES

Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar fyrir hönd Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjarvíkurborga, óskar eftir tilboðum í Hlemmtorg norður og borgarlína um Hlemm, gatnagerð, lagnir og yfirborðsfrágangur, EES útboð nr. 16279. 

Framkvæmdin felur í sér endurgerð á gatnamótum Snorrabrautar og Hverfisgötu, endurgerð á götukafla á Snorrabraut á milli Bríetartúns að Hverfisgötu, gerð torgsvæðis norðan borgarlínuás auk svæða sunnan við borgarlínuás frá gatnamótum og austur fyrir Hlemm mathöll og gerð Borgarlínu um torgsvæði Hlemms auk uppsetningar tveggja biðstöðva Borgarlínu á Hlemmsvæði. 

Núverandi fráveitulagnir verða endurnýjaðar með tvöföldu kerfi regnvatns- og skolps. Vatns- og hitaveitulagnir verða endurnýjaðar ásamt raf- og fjarskiptalögnum, borgar- og torglýsingu. Einnig verða umferðarljós við Snorrabraut/Hverfisgötu og Snorrabraut/Laugaveg endurnýjuð.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:15 þann 30. mars 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Verkkaupi hefur áveðið hefur verið að fresta opnun tilboða til kl. 10:00,  þann 13. maí 2026. Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en þá. 

Verkkaupi vill benda á að breytt opnun sé tilkomin vegna þess að ákveðið hefur verið að draga úr hæfiskröfum til verktaka 

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur en sjá má opnunarskýrslu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda