Nýr og glæsilegur íbúðakjarni fyrir fatlað fólk í Vesturbæ Reykjavíkur
Íbúar, aðstandendur, starfsfólk velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og kjörnir fulltrúar voru meðal þeirra sem mættu til að fagna opnun nýs íbúðakjarna á Sólvallagötu 79 í gær. Borgarstjóri og formaður velferðarráðs afhentu íbúum lykla að nýjum íbúðum sínum og páskalilju í potti.
Flest þeirra sem flytja á Sólvallagötu hafa hingað til búið á herbergjasambýlum í borginni. Samhliða opnun íbúðkjarnans er verið að loka þremur herbergjasambýlum. Það að fólki standi til boða að búa í eigin íbúð í stað herbergjasambýlis er í samræmi við breyttar áherslur innan málaflokksins, lög um þjónustu við fatlað fólk og sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem Ísland hefur lögfest. 19. grein sáttmálans fjallar um réttinn til sjálfstæðs lífs og það, að búa við sjálfstæði á heimili sínu, er stór partur af því.
Mikil uppbygging íbúðakjarna á undanförnum árum
Í samstarfi við Félagsbústaði hefur Reykjavíkurborg tekið 21 nýjan íbúðakjarna til notkunar frá árinu 2018. Á sama tíma hefur herbergjasambýlum smám saman verið lokað.
Að fá sitt eigið heimili er jákvætt skref í átt til sjálfstæðs lífs og í því eru mikil mannréttindi fólgin. Í herbergjasambýlum býr fólk alla jafna með ótengdu fólki, það hefur lítið persónulegt rými, hefur eigið herbergi en deilir baðherbergi, eldhúsi, stofu og öðrum sameiginlegum rýmum.
Fá stuðning við að lifa sjálfstæðu lífi
Íbúar á íbúðakjörnum fá stuðning frá forstöðumanni og öðru starfsfólki við að lifa sjálfstæðu lífi á eigin heimili. Allir einstaklingar sem búa í húsnæði fyrir fatlað fólk á vegum velferðarsviðs taka virkan þátt í gerð sinna einstaklingsáætlana. Þeir leggja því sjálfir upp þann stuðning sem þeir kjósa að fá, í samráði við starfsfólk. Leitast er við að mæta þörfum og óskum hvers og eins þeirra. Þetta geta til dæmis verið ákvarðanir um með hvaða hætti íbúi fær stuðning við að elda eða þrífa en stuðningurinn er líka af félagslegum toga, sem er ekki síður mikilvægt til að koma í veg fyrir að einstaklingar einangrist í sjálfstæðri búsetu.