Gleðin í trjánum – Hamingjuganga

Hamingjan og trén í borginni
Hamingja og tré í borginni

Á morgun klukkan 12:00 verður farið í hamingjugöngu þar sem bæði hamingjunni og krafti trjánna verður fagnað. Rannsóknir benda til þess að trjágróður styðji við andlega heilsu, getur dregið úr kvíða, streitu og hreinlega bætt skapið okkar.

Alþjóðlegi hamingjudagurinn er haldinn hátíðlegur 20. mars ár hvert, en Sameinuðu þjóðirnar stofnuðu til hans til að minna á mikilvægi hamingju og velsældar sem almennra markmiða í lífi fólks. Dagurinn leggur áherslu á geðheilsu, samkennd og félagsleg tengsl, oft með málþingum eða viðburðum sem tengjast heimsmarkmiðum SÞ.

Þann 21. mars er svo alþjóðlegur dagur skóga til að vekja athygli á mikilvægi hvers kyns skóga og trjáa utan skóglendis. Skógar hafa verið ofarlega í allri alþjóðlegri umræðu frá því að heimsmarkmiðin til 2030 um sjálfbæra þróun voru sett og Parísarsamkomulagið samþykkt.

Hamingjan og kraftur trjánna

Á morgun klukkan 12:00 verður farið í hamingjugöngu þar sem bæði hamingjunni og krafti trjánna verður fagnað. Rannsóknir benda til þess að trjágróður styðji við andlega heilsu; gönguferð í skógi eða það af hafa útsýni á tré úr glugga getur dregið úr kvíða, streitu og hreinlega bætt skapið okkar. Það mætti því segja að tré í borgarumhverfinu séu ómissandi þáttur í hamingjuríkara mannlífi.

Trjágróður og mannlíf í Reykjavík
Trjágróður og mannlíf í Reykjavík

Gangan hefst í Fógetagarðinum og endar við Háskóla Íslands.

Gleðigjafinn Edda Björgvinsdóttir leiðir gönguna ásamt Ingrid Kuhlman og Margréti Leifsdóttur með dyggri aðstoð Bjarkar Þorleifsdóttur úr Grasagarði Reykjavíkur.

Gengið verður um miðborg Reykjavíkur, stoppað verður við söguleg og merkileg tré, og á meðan á göngunni stendur verður staldrað við og viðstöddum gefinn tími til að anda, hlusta, njóta og fanga hamingjuna – jafnvel í miðri borginni. Þátttakendur eru beðnir um að klæða sig eftir veðri. Aðgangur ókeypis.

Hamingjumálþing í Háskóla Íslands

Eins og áður segir þá lýkur göngunni við Háskóla Íslands. Í Hátíðarsal HÍ hefst svo áhugavert málþing klukkan 13:00 þar sem fjallað verður um tengsl samfélagsmiðla og hamingju.

Farið verður yfir hverjar eru helstu áskoranirnar í stafrænum heimi nútímans og hvernig getum við nýtt tæknina á jákvæðan hátt til að styðja við hamingju og vellíðan?

Á þinginu verða fjölbreyttir og áhugaverðir fyrirlestrar og pallborð. Hamingjuþingið endar svo með stuði með Eddu Björgvinsdóttur.

Fögnum hamingjunni á skemmtilegum viðburðum á Alþjóðlega hamingjudeginum.

Öll velkomin.