Heilbrigðisnefnd
Árið 2026, fimmtudaginn 19. mars kl. 11:05, var haldinn 171. fundur heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Hjálmar Sveinsson, Birkir Ingibjartsson og fulltrúi Samtaka atvinnulífsins, Ólafur Jónsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Ásta Björg Björgvinsdóttir og Einar Sveinbjörn Guðmundsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Tómas G. Gíslason, Guðjón Ingi Eggertsson, Jón Ragnar Gunnarsson, Hreinn Ólafsson, Svava Svanborg Steinarsdóttir, Helgi Guðjónsson, Rúnar Grímsson og Sigurjóna Guðnadóttir. Fundarritari var Magnea Lillý Friðgeirsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Fram fer umræða um málefni Reykjavíkurflugvallar.
Margrét Manda Jónsdóttir og Kristján Vigfússon taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 11:49 víkur Rúnar Grímsson af fundi. HER26010001
-
Lagt fram í trúnaði, ársuppgjör Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur fyrir árið 2025.
- Kl. 11:57 víkur Hreinn Ólafsson af fundi. HER26010001
-
Fram fer umræða um málefni vatnsverndarsvæðis í Heiðmörk. HER26010001
-
Fram fer umræða um loftgæði og svifryksmengun í Reykjavík. HER26010001
-
Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 5. mars 2026 um breytingu á deiliskipulagi Breiðholts III við Suðurhóla, sbr. umsagnarbeiðni umhverfis- og skipulagssviðs dags. 2. febrúar 2026, ásamt fylgigögnum. HER26010001
-
Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 11. mars 2026 um Borgarlínu 1. lota - Suðurlandsbraut, sbr. mál nr. 99/2026 í skipulagsgátt, ásamt fylgigögnum. HER26010001
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 12. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2601014, dags. 23. janúar 2026, þar sem bifreið kæranda var fjarlægð af Vöku þar sem hún stóð við Staðarbakka 8 í Reykjavík. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 13. mars 2026. HER26010001
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf borgarstjórnar dags. 19. mars 2026 þar sem tilkynnist að Sandra Hlíf Ocares hefur verið kosin í heilbrigðisnefnd Reykjavíkur í stað Björn Gíslason. MSS22060075
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 19. febrúar 2026, 26. febrúar 2026, 27. febrúar 2026, 5. mars 2026 og 12. mars 2026. HER26010001
- Kl. 12:33 víkur Einar Sveinbjörn Guðmundsson af fundi.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 12:36
Hjálmar Sveinsson Ásta Björg Björgvinsdóttir
Birkir Ingibjartsson Ólafur Hvanndal Jónsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 19. mars 2026