Heilbrigðisnefnd - Fundur nr. 171

Heilbrigðisnefnd

Árið 2026, fimmtudaginn 19. mars kl. 11:05, var haldinn 171. fundur heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Hjálmar Sveinsson, Birkir Ingibjartsson og fulltrúi Samtaka atvinnulífsins, Ólafur Jónsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Ásta Björg Björgvinsdóttir og Einar Sveinbjörn Guðmundsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Tómas G. Gíslason, Guðjón Ingi Eggertsson, Jón Ragnar Gunnarsson, Hreinn Ólafsson, Svava Svanborg Steinarsdóttir, Helgi Guðjónsson, Rúnar Grímsson og Sigurjóna Guðnadóttir. Fundarritari var Magnea Lillý Friðgeirsdóttir.
 

Þetta gerðist:

  1. Fram fer umræða um málefni Reykjavíkurflugvallar.

    Margrét Manda Jónsdóttir og Kristján Vigfússon taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 11:49 víkur Rúnar Grímsson af fundi. HER26010001
     

  2. Lagt fram í trúnaði, ársuppgjör Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur fyrir árið 2025.

    -    Kl. 11:57 víkur Hreinn Ólafsson af fundi. HER26010001
     

  3. Fram fer umræða um málefni vatnsverndarsvæðis í Heiðmörk. HER26010001
     

  4. Fram fer umræða um loftgæði og svifryksmengun í Reykjavík. HER26010001
     

  5. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 5. mars 2026 um breytingu á deiliskipulagi Breiðholts III við Suðurhóla, sbr. umsagnarbeiðni umhverfis- og skipulagssviðs dags. 2. febrúar 2026, ásamt fylgigögnum. HER26010001
     

  6. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 11. mars 2026 um Borgarlínu 1. lota - Suðurlandsbraut, sbr. mál nr. 99/2026 í skipulagsgátt, ásamt fylgigögnum. HER26010001
     

    Fylgigögn

  7. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 12. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2601014, dags. 23. janúar 2026, þar sem bifreið kæranda var fjarlægð af Vöku þar sem hún stóð við Staðarbakka 8 í Reykjavík. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 13. mars 2026. HER26010001
     

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf borgarstjórnar dags. 19. mars 2026 þar sem tilkynnist að Sandra Hlíf Ocares hefur verið kosin í heilbrigðisnefnd Reykjavíkur í stað Björn Gíslason. MSS22060075
     

    Fylgigögn

  9. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 19. febrúar 2026, 26. febrúar 2026, 27. febrúar 2026, 5. mars 2026 og 12. mars 2026. HER26010001

    -    Kl. 12:33 víkur Einar Sveinbjörn Guðmundsson af fundi.
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 12:36

Hjálmar Sveinsson Ásta Björg Björgvinsdóttir

Birkir Ingibjartsson Ólafur Hvanndal Jónsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 19. mars 2026