Miðbæjarrottan í bókmenntaborg

Miðbæjarrottan í bókmenntaborg

Nýlega kom út barnabókin Miðbæjarrottan í bókmenntaborg eftir rithöfundinn Auði Þórhallsdóttur, sem gefin er út í samstarfi við Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. 

Auður hefur skrifað og myndskreytt fjórar bækur um Miðbæjarrottuna Rannveigu sem býr í miðborg Reykjavíkur og þekkir þar hvern krók og kima. Í gegnum ævintýri hennar fá lesendur að kynnast borginni, sögu hennar, húsum, innviðum og daglegu lífi á aðgengilegan og leikandi hátt. 

Bækurnar fjórar fjalla meðal annars um borgarsögu Reykjavíkur, hús og byggingar í bænum, vatn og innviði borgarinnar og um Reykjavík sem bókmenntaborg.

Sögurnar eru sagðar með hlýju og húmor og tengja saman fræðslu og ímyndunarafl. Miðbæjarrottan er ekki aðeins skálduð persóna heldur leiðsögumaður um menningararf og borgarrými Reykjavíkur. Í gegnum hennar augu verður borgin lifandi og aðgengileg fyrir yngri lesendur. Verk Auðar sameina þannig fræðslu, list og staðarvitund og hafa meðal annars verið nýtt sem grunnur að fjölskyldugöngum um miðborg Reykjavíkur þar sem börn geta fylgt slóðum rottunnar um borgina. 

Sunnudaginn 15. mars kl. 14–16 verður haldið útgáfuboð í Borgarbókasafninu Grófinni í tilefni af útgáfu bókarinnar og eru öll eru hjartanlega velkomin.