Betri almenningsgarður í Breiðholti
Leitað er eftir hugmyndum frá íbúum til að að bæta almenningsgarðinn í Efra-Breiðholti, sem liggur milli Fella- og Hólabrekkuskóla. Reykjavíkurborg og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti ásamt ellefu evrópskum borgum eru þátttakendur í samstarfsverkefninu GreenInCities. Markmið verkefnisins er að auka gæði grænna svæða bæði fyrir íbúa og dýralíf. Almenningsgarðar geta skapað vettvang fyrir samveru og styrkt félagsleg samskipti og tengsl íbúa. Garðurinn í Efra-Breiðholti þjónar mikilvægu hlutverki fyrir hverfið og er hann viðfangsefni verkefnisins í Reykjavík.
Kynning í anddyri Breiðholtslaugar
Starfsfólk Reykjavíkurborgar og samstarfsaðilar í verkefninu verða með viðveru í Breiðholtslaug á eftirfarandi tímum: 17. mars kl. 9-18, 18. mars kl. 9-16, 19. mars kl. 9-18, 20. mars kl. 9-16. Við hvetjum íbúa til að mæta að segja sína skoðun. Upplýsingarnar sem safnast verða nýttar í GreenInCities-verkefninu til að vinna tillögu að endurbótum á svæðinu.
GreenInCities er ESB-styrkt Horizon-verkefni þar sem markmiðið er að efla græn svæði og líffræðilegan fjölbreytileika í borgum. Mikilvægur hluti af verkefninu er íbúaþátttaka og samráð. Við höfum trú á að garðurinn búi yfir fjölmörgum tækifærum til að efla samfélagið í Efra-Breiðholti.
Vettvangur fyrir fjölbreytt mannlíf
Vel hannaðir almenningsgarðar geta stuðlað að vellíðan, öryggi og bættri lýðheilsu, auk þess að vera vettvangur fyrir fjölbreytt mannlíf. Í hverfisskipulagi Reykjavíkur er áhersla lögð á að efla samfélagið, bæta borgarumhverfið, innleiða sjálfbærar og umhverfisvænar lausnir ásamt að efla grænu svæðin og garðana. Hverfisskipulag fyrir öll þrjú hverfin í Breiðholti tók gildi í maí 2022 og er mikilvægur hluti þess að efla gróður í hverfunum. Almenningsgarðurinn í Efra-Breiðholti er skilgreindur sem hverfisgarður fyrir fjölbreytta útivist með leiksvæðum, kyrrlátu svæði og með möguleika á borgarbúskap.
Samkvæmt nýrri borgarhönnunarstefnu eru græn almenningsrými skilgreind sem lykilþættir í lífi borgarinnar. Það er því mikill ávinningur að rýna svæðið með íbúum.
Saga garðsins
Efra-Breiðholt var skipulagt á árunum í kringum 1970 af arkitektunum Geirharði Þorsteinssyni og Hróbjarti Hróbjartssyni. Mikilvægur hluti af skipulaginu var miðsvæði hverfisins með skólum, íþróttamannvirkjum og stórum almenninsgarði í hjarta hverfisins á sólríkum og skjólgóðum stað.
Til þess að skipuleggja almenningsgarðinn var brautryðjandinn og landslagsarkitektinn Reynir Vilhjálmsson fenginn í verkið en hann hafði hannað mikilvæg útivistarsvæði í borginni eins og Klambratún.
Uppbygging garðsins í Efra-Breiðholti tók allnokkurn tíma. Lýsing garðyrkjustjórans Hafliða Jónssonar í ársskýrslu 1984 dregur fram áhugaverða mynd af framgangi verksins: „Garðurinn á enn langt í land áður en hann verður orðinn að aðlaðandi útivistarsvæði en þó gætu Breiðholtsbúar flýtt verulega fyrir að svo verði með því að vakta svæðið og forða því frá að árlega þurfi að vinna upp sömu ræktunarverkefnin sökum slæmrar umgengni.”
Nokkrum árum seinna var staðan breytt, góður vöxtur var að komast í trjágróður enda Breiðholtsbúar búnir að taka ástfóstri við garðinn og læra að umgangast gróðurinn.
Frá því garðurinn komst í núverandi mynd hafa minniháttar breytingar verið gerðar fyrir utan eðlilega endurnýjun og viðhald.
Dýralíf í garðinum
Auðnutittlingur er einn minnsti íbúi garðsins og mikilvægur hluti af dýralífinu. Hann er harðgerður spörfugl með einkennandi rauðan blett á enni og mikla þrautseigju – grefur sig jafnvel í snjó til að lifa af veturinn.
Fuglinn er frææta og þrífst í skjóli fjölbreytts trjágróðurs. Hann lifir aðallega á birkifræi en sækir einnig í sólblómafræ og hefur nýlega lært að ná í fræ úr greni- og furukönglum.
Eitt af markmiðum GreenInCities er að styrkja búsvæði auðnutittlings í hverfisgarðinum í Efra-Breiðholti og efla fjölbreytt samhliða smáfuglalíf.
Við hvetjum íbúa í nágranna garðsins og öll áhugasöm að mæta í Breiðholtslaug í næstu viku, spjalla við starfsfólk og segja sína skoðun á því hvernig hægt sé að gera góðan garð enn betri!