Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins hefst í dag

Séð aftan á ungmenni á gangi skóla, kringum þau eru litríkir veggir, til dæmis regnbogi málaður á einn vegginn.

Farsældarvika fer fram með fjölbreyttri dagskrá og fræðslu á öllu höfuðborgarsvæðinu í þessari viku, dagana 9.–13. mars 2026. Markmiðið er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og lyfta upp þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar farsældarlaganna. 

Áhersla á starfsfólk í skóla- og frístundastarfi

Í Reykjavík miðast fræðslan þetta árið að mestu leyti að starfsfólki í skóla- og frístundastarfi. Um skipulagningu sjá Barnavernd Reykjavíkur og miðstöðvar Reykjavíkurborgar, þar sem veitt er þjónusta, upplýsingar, stuðningur og ráðgjöf á sviði velferðar-, skóla- og frístundamála í borginni. Meðal þess sem verður á dagskrá eru námskeið og vinnustofur fyrir tengiliði farsældar í öllum leik- og grunnskólum borgarinnar, málstjóra og ráðgjafa á miðstöðvum, kynningar á farsældarlögum og innleiðingu þeirra í skólum og frístundamiðstöðvum. 

Rétt aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum

Farsældarlögin, sem tóku gildi árið 2022, fólu í sér nýja nálgun þar sem barnið er sett í öndvegi og tryggt að þjónusta og stuðningur við það sé samþættur þvert á kerfi. Markmiðið er að börn og fjölskyldur þeirra hafi greiðan aðgang að þeirri þjónustu sem þau þurfa og að þau fái rétta aðstoð á réttum tíma, frá réttum aðilum. 

Í vikunni verða sýnd myndbönd á TikTok-aðgangi Reykjavíkurborgar, þar sem ungmenni í borginni deila sinni sýn á farsæld og segja meðal annars frá því hvert þau leita ef eitthvað bjátar á í þeirra lífi. 

Foreldrum er bent á stutt hádegiserindi sem Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins stendur fyrir í hádeginu alla daga farsældarvikunnar. Í þeim verður meðal annars um skjátíma, tengsl og samskipti, kvíðavanda barna og fleira.