Leikskólinn Vesturborg – kennslustofur, hönnun, smíði og lóðarfrágangur

Uppsetning fjögurra færanlegra kennslustofa við leikskólann Vesturborg.
2025 - 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Yfirlitsmyndir

Hvað verður gert?

Framkvæmdin i felur í sér hönnun, smíði, flutning og uppsetningu á fjórum kennslustofum og tveimur tengibyggingum, ásamt hönnun og framkvæmd jarðvinnu, gerð undirstaða og lagningu allra lagna í grunni. Verkið nær einnig til lóðarvinnu í samræmi við fyrirliggjandi hönnun.

 

Kennslustofurnar eru hver um sig 14,9m x 6,4m eða um 96m2 á einni hæð ásamt tveim tengibyggingum, um 40m2 og 50m2 hvor. Samtals er því nýja húsnæðið um 474m2 að stærð. Kennslustofurnar skulu vera byggðar úr timbri. Hverja kennslustofu á að vera hægt að flytja í heilu lagi, setja niður á lóð leikskólans og tengja saman með tengibyggingu.

 

Verkið felur í sér eftirfarandi verkþætti:

• Hönnun og smíði fjögurra kennslustofa og tveggja tengibygginga við leikskólann

• Lóðarfrágang á tengdum svæðum samkvæmt fyrirliggjandi hönnun

• Lagningu stofnlagna fyrir kennslustofur ásamt tengingu við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.

 

Samþykkt hefur verið niðurrif á húsi vestast á lóðinni og koma því kennslustofurnar í stað þess.

Hvernig gengur?

Framkvæmdatími

Áætlaður framkvæmdatími miðast við janúar 2026 til desember 2026.

Hver koma að verkinu?

Reykjavíkurborg

Verkkaupi - Skrifstofa framkvæmda og viðhalds fyrir hönd Eignaskrifstofu og Skóla-og frístundasviðs

Eftirlit framkvæmdar

Hnit Verkfræðistofa

Verktaki

MG hús
Last updated 05.03.2026