Fossvogsblettur - nýr leikskóli

Fullnaðarhönnun, útvegun og uppsetning á 10 deilda leikskóla úr forsmíðuðum timbureiningum við Fossvogsblett 2-2A. Botnplata er staðsteypt. Byggingin er 2.194 fermetrar.
Haust 2025 - Vor 2027
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Fossvogsblettur

Hvað verður gert?

Leikskólabyggingin er á einni hæð með flötu þaki og stendur austast á lóðinni. U-laga form hennar myndar eins konar faðm til vesturs þar sem skjólgott og rólegt útisvæði myndar aðkomutorg leikskólans. Sorp- og hjólageymslur eru í sérbyggingum.

Skólinn mun hýsa 10 leiskóladeildir sem dreifast í þrjá húshluta. Hver deild samanstendur af heimastofu, tveimur hóprýmum og snyrtingu. Deildirnar sameinast um matstofur og opin rými.

Yngstu börnin eru í suðurhluta byggingarinnar þar sem eru fjórar deildir. Miðstig skólans verður í austurhlutanum þar sem eru þrjár deildir og elstu börnin verða í norðvesturhluta byggingarinnar þar sem eru þrjár deildir. Í norðurhluta byggingarinnar, á milli deilda mið- og efsta stigs, eru fjölnotasalur, bókasafn/opið rými, listasmiðja, eldhús skólans ásamt aðstöðu starfsfólks.

Sérstakur inngangur er við hvern húshluta leikskóladeildanna í góðum tengslum við fataherbergi nemenda sem svo tengjast beint við matstofur/opin rými deildanna.
Inngangur starfsfólks er að norðanverðu og tengist beint við aðstöðu starfsfólks. Inngangur í eldhús leikskólans er einnig að norðanverðu. Inngangur fyrir gesti er að norðvestanverðu, í góðum tengslum við rými yfirstjórnar skólans.

Í grunninn er fyrirkomulag deildanna mjög líkt að undanskildum snyrtingum þeirra. Á deildum fyrir yngstu börnin sameinast tvær deildir um snyrtingu. Snyrtingarnar taka mið af aldurshópnum og þ.a.l. er gert ráð fyrir tveimur skiptiborðum, tveimur salernum og koppasvæði á hvorri snyrtingu. Á deildum fyrir eldri nemendur hefur hver deild sína snyrtingu þar sem gert er ráð fyrir tveimur salernum og möguleika á skiptiborði. Á öllum snyrtingum er gerð ráð fyrir nemendum í hjólastól. Einnig er gert ráð fyrir snyrtingum í tengslum við fataherbergi nemenda.

Gert er ráð fyrir að aðstaða starfsfólks geti rúmað allt að 60 manns samtímis. Í tengslum við aðstöðu þess eru þrjár snyrtingar, þar af ein með sturtu. Til viðbótar við þær er gert ráð fyrir einni snyrtingu fyrir starfsfólk í suðurhluta byggingarinnar. Allir starfsmenn fá munaskáp í aðstöðu starfsfólks. 

Eldhúsið er framleiðslueldhús þar sem hádegisverður er eldaður. Morgunverður og kaffihressingar verða jafnframt útbúnar á staðnum. Starfsfólk eldhússins hefur sérsnyrtingu ásamt skiptiaðstöðu við hlið eldhússins.

Byggingin verður Svansvottuð.

Hvernig gengur?

September 2026

Utandyra

Uppsetning þaks er lokið.

Unnið er í uppsetningun á portveggjum ofan á þaki og klæðningu þaks.

Unnið er í timburklæðningum á veggjum og undir skyggnum. 

Fossvogsblettur
Unnið er í klæðningum veggja og í frágangi þaks. 

Innandyra

Unnið er í klæðningum veggja innandyra.

Unnið er í lögnum í veggjum innnadyra. 

Fossvogsblettur
Unnið er í frágangi innandyra. 

Ágúst 2026

Áframhaldandi vinna við uppsetningu veggja og þakeininga. 

Búið er að setja upp allar veggja einingar og þak er komið á 3 húshluta af 6. 

Byrjað er að klæða í kringum glugga og þakskyggni. 

fossvogsblettur
Klæðning kringum glugga

Júlí 2026

Uppsetning veggja- og þakeininga hefst. 

Byggingin er skilgreind í 6 húshlutum, og er uppsetningu veggja lokið í fyrstu 3 hlutunum.

Lokið er við að setja þak á fyrsta húshluta. 

Unnið er í grunnlögnum utan við byggingu. 

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

Umsjón, eftirlit og byggingarstjórn

Efla hf.

Verktaki

K16 ehf
Last updated 28.09.2026