Vogabyggð 2 - Yfirborðsfrágangur 2025

Verkið felst í yfirborðsfrágangi í Drómundarvogi og Dugguvogi.
Framkvæmdatími: September 2025 - júní 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Verkið felst í yfirborðsfrágangi við Duggu- og Drómundarvog. 

Fullnaðarfrágangur á yfirborði götu og göngusvæða við Drómundarvog ásamt gangstéttum og hjólastíg við Dugguvog. Einnig verður gengið frá götulýsingu við Drómundarvog. 

Hvernig gengur?

Maí 2026

  • Verið er að vinna við hellulögn í Drómundarvogi. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki á næstu tveimur vikum.
  • Frágangi á gangstéttum og bílastæðum í Dugguvogi er að mestu lokið.  
  • Það á eftir að leggja seinna malbikslagið á Dugguvog á milli Arkarvogs og Kleppsmýrarvegs og verður það gert í sumar.

September 2025.

Reykjavíkurborg hefur samið við Lóðaþjónusuna ehf. sem verktaka framkvæmda. Lóðaþjónustan þekkir vel til svæðisins hvort sem verkin hafi verið fyrir Reykjavíkurborg eða uppbyggingaraðila. 

Áætlað er að verkið hefjist á komandi dögum, í gangstéttum við Dugguvogi. 

Hver koma að verkinu?

Verkefnastjórnun

Skrifstofa framkvæmda og viðhalds
Þór Gunnarsson

Verktaki

Ljóðaþjónustan ehf, verkstjóri Haraldur Björnsson.

Eftirlit framkvæmda

VBV ehf.
Last updated 19.05.2026