Leikskólinn Árborg - endurgerð
Hvað verður gert?
Leikskólinn Árborg er byggður í tveimur áföngum, sá fyrri var reistur 1962 og byggt við hann árið 1997.
Verkið felst í endurgerð og endurbótum á hvorutveggja eldra húsi og viðbyggingu. Í eldra húsi er um að ræða endurnýjun þakvirkis, glugga og loftræstri utanhússklæðningu. Á viðbyggingu einskorðast utanhússframkvæmdir við gluggaendurnýjun.
Báðir áfangar fá heildaruppfærslu að innan þar sem tekið er tilliti til nútímakrafna til leikskólahúsnæðis svo sem:
- Bætt kennslurými ásamt uppfærðri starfsmannaaðstöðu
- Hljóð-og ljósvist verður stórbætt
- Varmaskiptakerfi verður í loftræsingu
- Brunavarnir verða uppfærðar til nútímakrafna
- Flest allar lagnir eru endurnýjaðar, allar í eldra húsi en að hluta í viðbyggingu
- Við endurgerð leikskólans verður gerð krafa um notkun umhverfisvænna byggingarefna
Hvernig gengur?
Ágúst 2025
Framkvæmdir halda áfram eftir sumarfrí. Verktaki er í jarðvinnu utanhúss og er að leggja gólfhitalagnir innanhúss.
Á lóðinni mun jafnframt verða komið fyrir tveimur færanlegum kennslustofum og áætlað er að því verkefni verði lokið sumarið 2026.
Maí 2025
Framkvæmdir eru komnar á gott skrið og verktaki hefur lokið niðurrifi og förgun á þaki, og brotið fyrir lögnum. Unnið er að uppbyggingu á nýju þaki, uppsetningu burðarbita og þakklæðningar.
Mars 2025
Gerður hefur verið samningur við verktakann K16. Undirbúningur framkvæmda er í fullum gangi og gert er ráð fyrr að framkvæmdir hefjist í mars.
Janúar 2025
Útboð 16072 var opnað í endurgerð Árborgar 15. janúar.
Sex verktakar buðu í verkið og verið er fara yfir útboðsgögn og tilboð verktaka. Niðurstöður og samningur ætti að liggja fyrir í febrúar.
Til að nýta tímann fram að uppbyggingu og minnka áhættu á fyrirséðum verkum var ákveðið að bæta enn frekar í að hreinsa bygginguna að innan svo hægt væri að gera sér enn betur grein fyrir ástandi húsins. Hreinsun lauk um miðjan janúar.
Niðurstaða útboðs:
https://reykjavik.is/sites/default/files/2025-01/16072-arborg-endurgerd-husnaedis.pdf
Október 2024
Útboð verður auglýst í nóvember.
Reiknað er með opnun útboðs í Janúar 2025.
Júlí 2024
Hönnunargögn tilbúin.
Útboðsgögn eru í rýni.
Niðurrifi að innan lokið að mestu.