Elliðaárdalur og Grænagróf við Breiðholtsbraut. Göngu- og hjólastígur

Framkvæmdin felst í stígagerð frá Grænugróf að Breiðholtsbraut ásamt fullnaðarfrágangi göngu- og hjólabrúar yfir Elliðaá við Grænugrófina. Auk þess skal breyta núverandi reiðstíg á svæðinu og gera nýjan áningarstað við Dimmu.
Framkvæmdaáætlun: Janúar 2024 - Ágúst 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Yfirlitsmynd

Hvað verður gert?

Framkvæmdin hefst á upprifi núverandi yfirborðs þar sem breytingar verða. Að því loknu felst framkvæmdin í fullnaðarfrágangi göngu- og hjólabrúar yfir Elliðaá við Grænugróf í Elliðaárdal ásamt stígagerð frá Grænugróf að Breiðholtsbraut. Framkvæmdin felst einnig í breytingum á reiðstígum og gerð nýs áningarstaðar við Dimmu. Hluti heildarframkvæmdarinnar felst í landmótun og frágangi gróðursvæða við brúna og nýju stígana, stígalýsingu og nýjum skiltum og merkingum í tengslum við hana. Brúarhandrið og lýsing brúarinnar verður boðin út sérstaklega í öðru útboðsverki.


Á svæðinu er einnig annar verktaki sem er að sjá um framkvæmdir vegna Arnarsnesvegar og brúar yfir Dimmu.


Vakin er sérstök athygli á því að umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar (USK) er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi í samræmi við ISO 14001.


Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:

  • Uppgröftur og jarðvegsskipti með aðfluttri fyllingu.
  • Fullnaðarfrágangur göngu- og hjólabrúar við Grænugróf fyrir utan handrið, polla við brúna og lýsingar í þau.
  • Fullnaðarfrágangi lýsingar meðfram göngustígum.
  • Fullnaðarfrágangi malbikaðs yfirborðs ásamt hellulögn á hlutasvæðum.
  • Fullnaðarfrágangi skilta og merkinga.
  • Fullnaðarfrágangi gróðursvæða og áningarstaðar í samræmi við hönnunargögn

Hvernig gengur?

Okt 2026

Verið er að byrja á uppsetningu endanlegs ljósabúnaðar á brúnni.

Apríl 2026

Verki er að mestu lokið og brúin og göngu/hjólastígur komin í notkun fyrir nokkru síðan.  Verki er ekki að fullu lokið en eftir á að mála handriði og setja upp ljósabúnað sem verður unnið við í sumar og er gert ráð fyrir að því ljúki í ágúst.

Des 2024

Búið er að opna stíg fyrir notkun með bráðabyrgðahandriði en eftir á að setja endanlegt handrið á brúna, það verk færist til vors 2025.

Hver koma að verkinu?

Verkefnisstjóri USK

Gunnar Atli Hafsteinsson

Verktaki

Gleipnir verktakar

Yfirstjórn verktaka

Heimir Heimisson

Eftirlit framkvæmda

Verkfræðistofa Reykjavíkur

Eftirlitsaðili framkvæmda

Stefán Ingi Björnsson hjá VSR
Last updated 13.10.2026