Bryggjuhverfi vestur

Unnið er að fergingu lands í Bryggjuhverfi við Sævarhöfða, nánar tiltekið vestan Tangabryggju og Gjúkabryggju og gerð landfyllingar við höfnina.
Mars 2023 - Desember 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Bryggjuhverfi vestur

Hvað verður gert?

Árið 2023 var 100.000 m3 af burðarhæfu efni dælt á land til notkunar í farg.  Jafnframt hefur verið tekið á móti burðarhæfu efni sem kemur úr framkvæmdum á vegum Reykjavíkurborgar og einkaaðila.  Tveir farghaugar eru notaðir til að flýta fyrir sigi á landinu.

Árið 2024 var haldið áfram með gerð varnargarðs sem lokar höfninni og byrjað að fylla upp í höfnina.  Samhliða því voru farghaugar fluttir til þegar sigi hefur verið náð á hverju svæði fyrir sig. 

Þessa dagana er verið að vinna við fergjun, niðurrif bygginga og gerð landfyllingar við höfnina. Gatnagerð í Gjúkabryggju er að hefjast.

Hvernig gengur?

Maí 2026:

Unnið er við fergjun, niðurrif bygginga og gerð landfyllingar við höfnina. Gatnagerð í Gjúkabryggju er að hefjast.

Október 2023

Núna er farghaugur á H-reit sem verður fluttur á K-reit í lok október og nóvember.

Vinna við fergingu D-reits hefst 23. október samhliða dælingu efnis á land.  

Hver koma að verkinu?

Verkefnisstjóri

Margrét Elín Sigurðardóttir

Verkkaupi

Reykjavíkurborg

Verktaki

Óskatak ehf.
Flutningur farghauga.

Verktaki

Björgun hf.
Efnisöflun.
Last updated 19.05.2026