Leikskólinn Hálsaskógur/Borg, endurgerð lóðar 2023, 2. áfangi
Verkið er 2. áfangi í endurgerð lóðar leikskólans Hálsaskógs-Borgar við Hálsaseli 27, 109 Reykjavík. Svæðið sem um ræðir er vesturhluti lóðar og er um það bil 1.100 m².
Júní til október
Hvað verður gert?
Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
Hvernig gengur?
Nóvember.
Klárað að setja upp lýsingu. Verki lokið í nóvember.
September og október
Leiktæki sett upp og gervigras lagt. Lokafrágangur á lóð í Október.
Júlí og ágúst
Stígurinn steyptur og unnið við yfirborðsfrágang
Maí og júní
Verk hafið, aðstaða verktaka sett upp, jarðvegsskipti, jarðvegsvinna, landmótun og drenlagnir lagðar.
Hver koma að verkinu?
Stefán Ingi Björnsson - Verkfræðistofu Reykjavíkur
Tók við af fyrri eftirlitsmanni í verki. Fannari Geirssyni (nafn hans er á upplýsingaskilti).
Last updated 13.11.2024