Óveruleg breyting á skipulagsuppdrætti
Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Þéttbýlisuppdráttur. Breytt landnotkun (leiðréttingar)
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 26. mars 2015, tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Breytingar/lagfæringar varða eingöngu framsetningu á þéttbýlisuppdrætti aðalskipulagsins. Um er að ræða lagfæringar á skilgreiningum landnotkunar, sem af tæknilegum ástæðum eða fyrir mistök voru ranglega skráð/afmörkuð í kortagrunni aðalskipulagsins. Í öllum tilvikum er verið að leiðrétta í samræmi við núverandi notkun á viðkomandi lóð/reit eða til samræmis við skilgreiningu fyrra aðalskipulags (AR2001-2024), enda sýnt að ekki hafa verið lagðar fram tillögur um breytingar í þessa veru við vinnslu AR2010-2030 og viðkomandi reitir ekki sérstaklega skilgreindir í greinargerð aðalskipulagsins. Breytingarnar/lagfæringarnar ná til eftirfarandi lóða/svæða: a) Tjarnargata nr. 33, 35, 37; b) Flugvallarvegur-Nauthólsvegur við Öskjuhlíð; c) Hálsasel 27-29; d) Brekkuhús 3; e) Maríubaugur 3. Sjá nánar um tillögu á vef Reykjavíkurborgar, reykjavik.is.
Aðalskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar, skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulegar breytingar á aðalskipulagi. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Tengill
Óveruleg breyting á skipulagsuppdrætti