Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, hafa gert samning til tveggja ára um að Blindrafélagið taki að sér að reka ferðaþjónustu fyrir blinda og sjónskerta.
Blindrafélagið hefur með samningnum heimild til að ráða leigubifreiðar frá bifreiðastöðvum, sem best kjör bjóða hverju sinni. Þjónustusvæði samningsinn er auk Reykjavíkur, Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Seltjarnarnes og Mosfellsbær.
Kostnaður af hverri ferð er hluti af fargjaldi þ.e. fjögur hundruð krónur fyrir hverja ferð upp að 6055 krónum en þá fer hlutur farþega upp í 800 krónur og verður 1200 krónur ef gjald fyrir hverja ferð fer yfir 8050 krónur. Ferðir sem farnar eru fyrir sjö á morgnanna og eftir miðnætti eru ekki niðurgreiddar af velferðarsviði og skal notandi greiða þær að fullu.
Þeir sem nýta þjónustuna gefa Blindrafélaginu upplýsingar um fastar ferðir t.d. vegna vinnu, skóla
eða hæfingar til að Blindrafélagið geti leitað hagræðis við skipulagningu ferða. Ferðir eru
samnýttar eins og kostur er, s.s. í tengslum við félagsstarf Blindrafélagsins. Þá er greitt eitt gjald fyrir hverja ferð.
Meðal nýjunga, frá eldri samningi, er að gert er ráð fyrir að hægt sé að semja um að notendur ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu, aðrir en blindir, eigi þess kosta að velja að koma inn í ferðaþjónustu blindra og er það í samræmi við tillögu neyðarstjórnar sem sett var yfir ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu.
Nýir umsækjendur skulu sækja um ferðaþjónustu fatlaðs fólks til þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar í hverfi umsækjanda. Fjöldi ferða er ákveðinn í samræmi við reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík.
Blindrafélagið hefur lýst ánægju með samninginn sem byggir á ferðaþjónustusamningi frá 1997, gildandi lögum og reglum og Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.