Gleðilega páska - opnunartímar yfir páskana
Páskarnir eru á næsta leyti. Þó svo að víða sé lokað á föstudaginn langa og páskadag verður þó hægt að skella sér í sund, á skíði eða í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn svo eitthvað sé nefnt.
Boðið verður upp á páskaeggjaleit í Viðey laugardaginn 30. mars, þá verður opið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum (www.mu.is) og í Laugardals- og Árbæjarlaug um páskana. Opnunartímar skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli má nálgast á www.skidasvaedin.is.
Allflest veitingahús í miðborginni eru með opið, en rétt er að hringja áður og kanna með opnunartíma áður en af stað er haldið.
Einnig minnum við á viðburðadagatal Reykjavíkurborgar þar sem ýmislegt er að gerast í borginni um páskana: