Regnbogabrú samvinnu og hugvitssemi við Gerðuberg

Umhverfislistaverk, sem nemendur í  listnámi, húsasmíði  og rafvirkjun við  Fjölbrautaskólann í Breiðholti hafa hannað og unnið að ásamt sex breskum gestanemendum, verður vígt sunnudaginn 18. nóvember kl. 14:00 á Markúsartorgi við Gerðuberg. 



Verkið hefur fengið heitið Regnbogabrú og er þar vísað í brúna Bifröst í norrænni  goðafræði; brú milli tveggja heima. Hefðbundin íslensk og bresk munstur skreyta brúna, en hún er úr gosflöskutöppum og má því kalla „tappa-mósaík“.

 „Nemendur hafa verið áhugasamir, framkvæmdasamir og hugrakkir við vinnslu verksins sem er flókið og krefst mikillar skipulagningar, samvinnu og hugvitssemi,“ segir Elín Rafnsdóttir sem leitt hefur samstarfsverkefnið.

Listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti tekur þátt í Comeniusar-áætluninni en henni er meðal annars er ætlað að þjálfa samvinnu nemenda og þekkingarmiðlun innan Evrópu. Bresku nemendurnir koma frá Roger Manwood’s School of Sandwich, Kent.  Regnbogabrúin er jafnframt hluti af verkefninu „Torg í biðstöðu“ sem Reykjavíkurborg hleypti af stokkunum í því augnamiði að fegra og bæta mannlíf á torgum borgarinnar.

Vígsla brúarinnar er hluti af dagskránni Unga Breiðholt.