Unga Breiðholt

 

Breiðhyltingar héldu sína hverfishátíð dagana 15. - 18. nóvember og var þetta í 10. sinn sem slík hátíð er haldin. „Unga Breiðholt“ var yfirskrift hátíðarinnar sem vísar til þess að æskuþor, eldmóður og virkni einkennir hverfið nú eins og í upphafi.

Breiðholt er fjölmennasta hverfi borgarinnar og eru íbúar þess um 21.000. Þar blómstrar fjölbreytt flóra af fólki sem fæst við allt milli himins og jarðar. Hverfið nýtur þess líka af því að vera í nálægð við nokkrar fegurstu útvistarperlur borgarinnar. 

Tilgangur Breiðholtsdaga er alltaf að efla samstöðu íbúa í hverfinu og vekja athygli þeirra og annarra á gróskunni sem þar ríkir. Mikilvægt er að íbúar taki virkan þátt í samfélaginu, ungir sem aldnir. 

Óskað er eftir að íbúar sendi inn ábendingar, athugsemdir og hugmyndir sem hafa kviknað á hátíðinni eða eftir hátíðina. breidholt@reykjavik.is