Myrkurkvöld á Korpúlfsstöðum
Listamenn á Korpúlfsstöðum bjóða til Myrkurkvölds fimmtudaginn 29. nóvember kl. 17:00 - 21:00.
Tvær myndlistarsýningar verða á Myrkurkvöldi. - Annars vegar óvenjuleg myndlistarsýning sem nefnist „Ljós í myrkri“ - aðeins verður ljóstýra frá kertum fyrir þá sem ekki eru vanir að rata í myrkri.
- Lítill munur mun vera á upplifun sjáandi og blindra gesta því verkin eru öll áþreifanleg og/eða 3víð. - Athugið að ratblindir mega hafa með sér vasaljós.
- Hins vegar sýningin „Vatnslitagleði“ á vegum Norræna Vatnslitafélagsins.
Hljómsveitin the Visionaries mun leika frá klukkan 18:00. Meðlimir hennar eru sjónskertir. Þeir eru Gísli Helgason, Hlynur Þór Agnarsson, Rósa Ragnarsdóttir og Haraldur G. Hjálmarsson. Gísli mun kynna nýútkominn CD disk sinn „Dagur“.
Pop-up markaður í sal Textílfélagsins.
Ingibjörg Ferdínandsdóttir les úr bók sinni „Leyndarmál Kela“.
Sigurður Skúlason les úr bókum Gyrðis Elíassonar upp úr klukkan 19:00.
Íris Edda Jónsdóttir syngur við undirleik Ragnars Ólafssonar.
Hinrik Bjarnason og Sæmundur Rúnar Þórisson leika á gítara lög af disknum „Duet de mano“.
Þegar fullur máninn brýst fram úr skýjum mun Kór Korpúlfa hefja raust á Myrkurkvöldi.
Rósukaffi mun bjóða uppá Soupe au Pistou.
- Listamenn á Korpúlfsstöðum opna vinnustofur og bjóða alla velkomna á Myrkurkvöld.