Umbótaverkefni og aukið samstarf leik- og grunnskóla
Skóla- og frístundaráð vill ráðast í umbótaverkefni í leik- og grunnskólum á grundvelli umfangsmikillar rannsóknar Gerðar G. Óskarsdóttur, fyrrverandi fræðslustjóra, á skilum skólastiga.
Í bókun ráðsins, sem allir kjörnir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar kennara, foreldra og stjórnenda stóðu að, er Gerði þakkað framlag sitt til skólamála og rannsóknar á því sem gerist á mörkum skólastiganna þriggja. Mikilvægt sé að nýta niðurstöðurnar til að auka samstarf skólastiganna svo að reynsla og nám barna nýtist þeim á næsta skólastigi. Þá segir í bókuninni að niðurstöðurnar kalli á umræður um starfshætti og tengsl skólastiganna þriggja, margvísleg þróunarverkefni, ígrundun og samtal kennara þvert á skólastig.
Skóla- og frístundaráð vill að lögð verði aukin áhersla á umbótaverkefni í reykvískum leik- og grunnskólum á grunni niðurstaðna rannsóknarinnar, sem og að Reykjavík verði leiðandi í umræðu um breytingar á skólakerfinu í heild sinni, nemendum til hagsbóta.
Ein af meginniðurstöðum rannsóknar Gerðar G. Óskarsdóttur sem hún birtir í nýútkominni bók sinni, er að svokallað afturhverft rof verði í ákveðnum þáttum í námi á skólaskilum; annars vegar þegar börn fara úr leikskóla í grunnskóla og hins vegar á skilum grunnskólans og framhaldsskólans. Því sé breytinga og jafnvel mikilla umbóta þörf til að tryggja betri samfellu í námi og að betur sé komið til móts við sérhvern nemanda.
Sjá frétt um fjölsótt málþing þar sem rannsóknarniðurstöður Gerðar G. Óskarsdóttur voru kynntar.