Vel heppnað málþing um skil skólastiga

Hátt í þriðja hundrað manns sátu málþing um skil skólastiga 13. nóvember, en þar kynnti Gerður G. Óskarsdóttir merkar niðurstöður rannsóknar sinnar á tvennum skólaskilum. Fjörugar umræður spunnust um hvort færa ætti skólaskil fram, fjölga þeim eða fækka.

Niðurstöður Gerðar á umfangsmiklum rannsóknum í reykvískum leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum benda til þess að svokallað afturhverft rof verði í ákveðnum þáttum í námi á skólaskilum; annars vegar þegar börn fara úr leikskóla í grunnskóla og hins vegar á skilum grunnskólans og framhaldsskólans. Því sé breytinga og jafnvel mikilla umbóta þörf til að tryggja betri samfellu í námi og að betur sé komið til móts við sérhvern nemanda. 



Á málþinginu brugðust fulltrúar þriggja skólastiga við niðurstöðum úr rannsókn Gerðar, þær Ólöf Helga Pálmadóttir, leikskólastjóri Sunnuási, Árný Inga Pálsdóttir skólastjóri í Kelduskóla og Hjördís Þorgeirsdóttir rektor í Menntaskólanum við Sund. Allar fögnuðu þær rannsókninni og sáu ýmsa fleti á því að bæta faglegt samstarf kennara þvert á skólastig og stofna til samstarfsnets skóla til að tryggja betri samfellu í námi.

Pallborðsumræðum stjórnaði Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs HÍ og kannaði hann m.a. hug þinggesta til þess hvort bæri að fjölga eða fækka skólaskilum og eða færa þau. Þá var rætt um mögulega yfirfærslu framhaldsskólans til sveitarfélaganna og nauðsyn þess að ein lög giltu um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.



Málþingið var haldið í nýjum Norðlingaskóla og gafst fundargestum kostur á að skoða glæsileg húsakynni skólann og nýjan leikskóla Rauðhóls sem einnig er í skólahúsinu og var nýlega tekinn í notkun.