Þjónusta Reykjavíkurborgar yfir jólin

Þjónustver Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, og Ráðhús Reykjavíkur við Vonarstræti verða opin frá 8:20-12:00 bæði á aðfangadag og gamlársdag . 

Hægt er að hringja í símaver 4 11 11 11 og  reynt verður eftir fremsta megni að aðstoða fólk með öll erindi og fyrirspurnir. Í símaveri er einnig að finna upplýsingar um bakvaktir og neyðarnúmer. 

Þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar eru lokaðar á aðfangadag og gamlársdag sem og hverfisstöðvar.   

Upplýsingar um sorphirðu er að finna á vef Sorphirðunnar á sorphirðudagatalinu. 

Venjulegur opnunartími verður hjá borginni 27. og 28. desember næstkomandi.