Öflugur stuðningur óskast í Furuskógarteymið!
Starfsmaður óskast til starfa við sérkennslu og snemmtæka íhlutun í leikskólanum Furuskógi.
Við í Furuskógi leitum að öflugum starfsmanni sem er tilbúinn til þess að veita börnum með sérþarfir t.d vegna hegðunarvanda, ADHD, einhverfu og/eða þroskaskerðingu leiðsögn og stuðning. Gott væri ef einstaklingur hafi reynslu af slíku starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vera tilbúinn til þess að takast á við krefjandi hegðun barna
- Vinna að gerð einstaklingsnámskráa og fylgja þeim eftir - notast er við AEPS matstækið.
- Eiga gott samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa sem koma að máli barnanna.
- Sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
Hæfniskröfur
- Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, sálfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun.
- Reynsla af sérkennslu og stuðningi við börn æskileg.
- Þora að takast á við krefjandi hegðun barna - reynsla æskileg.
- Geta til þess að vinna vel í teymi.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
- Tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsfólks og afsláttur af leikskólagjöldum
- Stytting vinnuvikunnar - 36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
- Frítt fæði á vinnutíma, grænmetis- og veganfæði í boði
- Samgöngustyrkur
- Reykjavíkurkort sem veitir aðgang að söfnum borgarinnar, ókeypis bókasafnskort og frítt í sundlaugar Reykjavíkur
- Heilsuræktarstyrkur
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Brynjarsdóttir leikskólastjóri í síma 618 8933 eða tölvupósti furuskogur@reykjavik.is
Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.
Leikskólinn Furuskógur
við Áland
við Efstaland 28
108 Reykjavík