Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa í leikskólanum Vesturborg.
Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólanum Vesturborg sem er leikskóli í Vesturbænum, staðsettur að Hagamel 55.
Eitt af aðalmarkmiðum leikskólastarfsins er vinátta og virðing.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
- Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra
- Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við aðra starfsmenn og deildarstjóra
- Hafa samskipti og samvinnu við foreldra í samstarfi við deildarstjóra
- Sinna öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri felur starfsmanni
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- íslenskukunnátta B2 skv.samevrópska tungmálarammanum
Fríðindi í starfi
- Frír hádegismatur
- Menningarkort – bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
- Heilsuræktarstyrkur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara. Um er að ræða fullt starf sem laust er nú þegar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Deep Shika starfandi leikskólastjóri á netfanginu deep.shika@reykjavik.is og í síma 4113851
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.