Teymisstjóri í sértækri búsetu
Ertu faglega sterkur einstaklingur sem hefur brennandi áhuga á að leiða öflugt teymi og taka þátt í að skapa þjónustu sem styður fatlað fólk til sjálfstæðs og innihaldsríks lífs?
Við leitum að metnaðarfullum og faglegum teymisstjóra til starfa í sértækri búsetu. Starfið er fjölbreytt og krefjandi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, valdeflandi stuðning, þjónandi leiðsögn og einstaklingsmiðaða þjónustu. Teymisstjóri gegnir lykilhlutverki í að leiða starfsfólk, styðja íbúa og þróa þjónustuna í samstarfi við forstöðumann og felur í sér bæði stjórnun og faglega forystu sem og þátttöku í vöktum í beinni þjónustu við íbúa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og samræma daglegt starf teymis í samstarfi við forstöðumann.
- Skipuleggja framkvæmd þjónustu og hafa yfirsýn yfir þjónustuþarfir íbúa.
- Styðja íbúa til sjálfstæðs lífs og aukinnar samfélagsþátttöku.
- Ber ábyrgð á gerð, framkvæmd og endurmati einstaklingsbundinna þjónustuáætlana.
- Veita starfsfólki ráðgjöf, leiðsögn og stuðning í starfi.
- Samræma vinnubrögð og stuðla að faglegri þróun og umbótastarfi.
- Stýra samstarfi við íbúa, aðstandendur, fagaðila og aðra þjónustuaðila.
- Taka þátt í stjórnunarteymi starfsstaðar.
- Sinna beinni þjónustu við íbúa samkvæmt skipulagi starfsstaðar.
Hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki.
- Reynsla af leiðtogahlutverki eða stjórnun er kostur.
- Þekking á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs, mannréttindum og valdeflandi þjónustu.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta – C1 eða C2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Hreint sakavottorð samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi hjá Reykjavíkurborg
- Sund- og menningarkort Reykjavíkurborgar
- Heilsu- og samgöngustyrkur
- Aðgengi að stuðnings- og ráðgjafateymi borgarinnar
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Sigurborg Ö. Möller, forstöðumaður, í síma 824 2696 eða með tölvupósti á sigurborg.orvarsdottir.moller@reykjavik.is.