Til baka á starfasíðu

Teymisstjóri í sértækri búsetu

Ertu faglega sterkur einstaklingur sem hefur brennandi áhuga á að leiða öflugt teymi og taka þátt í að skapa þjónustu sem styður fatlað fólk til sjálfstæðs og innihaldsríks lífs?

Fullt starf Íbúðakjarni Vættaborgir 82 112
Sækja um

Við leitum að metnaðarfullum og faglegum teymisstjóra til starfa í sértækri búsetu. Starfið er fjölbreytt og krefjandi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, valdeflandi stuðning, þjónandi leiðsögn og einstaklingsmiðaða þjónustu. Teymisstjóri gegnir lykilhlutverki í að leiða starfsfólk, styðja íbúa og þróa þjónustuna í samstarfi við forstöðumann og felur í sér bæði stjórnun og faglega forystu sem og þátttöku í vöktum í beinni þjónustu við íbúa.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða og samræma daglegt starf teymis í samstarfi við forstöðumann.
  • Skipuleggja framkvæmd þjónustu og hafa yfirsýn yfir þjónustuþarfir íbúa.
  • Styðja íbúa til sjálfstæðs lífs og aukinnar samfélagsþátttöku.
  • Ber ábyrgð á gerð, framkvæmd og endurmati einstaklingsbundinna þjónustuáætlana.
  • Veita starfsfólki ráðgjöf, leiðsögn og stuðning í starfi.
  • Samræma vinnubrögð og stuðla að faglegri þróun og umbótastarfi.
  • Stýra samstarfi við íbúa, aðstandendur, fagaðila og aðra þjónustuaðila.
  • Taka þátt í stjórnunarteymi starfsstaðar.
  • Sinna beinni þjónustu við íbúa samkvæmt skipulagi starfsstaðar.

Hæfniskröfur

  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki.
  • Reynsla af leiðtogahlutverki eða stjórnun er kostur.
  • Þekking á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs, mannréttindum og valdeflandi þjónustu.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta – C1 eða C2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Hreint sakavottorð samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi hjá Reykjavíkurborg

  • Sund- og menningarkort Reykjavíkurborgar
  • Heilsu- og samgöngustyrkur
  • Aðgengi að stuðnings- og ráðgjafateymi borgarinnar

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Sigurborg Ö. Möller, forstöðumaður, í síma 824 2696 eða með tölvupósti á sigurborg.orvarsdottir.moller@reykjavik.is.

Sækja um