Back to the jobs page

Stuðningsfulltrúi óskast – viltu styðja fatlað fólk til sjálfstæðs lífs?

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitar að öflugum og áhugasömum starfsmönnum til að styðja fatlað fólk með fjölþættar stuðningsþarfir sem býr í sjálfstæðri búsetu.

Fullt starf Liðsaukinn - Færanlegt teymi 101
Apply

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitar að öflugum og áhugasömum starfsmönnum til að styðja fatlað fólk með fjölþættar stuðningsþarfir sem býr í sjálfstæðri búsetu.

Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem reynir á hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleika, útsjónarsemi og fagmennsku. Við leitum að fólki sem sýnir frumkvæði og hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.

Um starfið

Meginverkefni er að styðja einstaklinga við að halda heimili og sinna daglegum viðfangsefnum þannig að þeir geti lifað sjálfstæðu og virku lífi á eigin forsendum. Stuðningurinn tekur mið af þörfum og óskum hvers og eins og getur meðal annars falist í aðstoð við heimilishald, daglegar athafnir og þátttöku í samfélaginu. Mikilvægt er að starfsfólk geti brugðist við ólíkum aðstæðum af yfirvegun, virðingu og fagmennsku.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Styðja einstaklinga við heimilishald og dagleg verkefni.
  • Veita einstaklingsmiðaðan og valdeflandi stuðning.
  • Efla sjálfstæði og þátttöku í samfélaginu.
  • Vinna í samræmi við hugmyndafræði, lög og reglur á sviði þjónustu við fatlað fólk.

Hæfniskröfur

  • Áhugi á að starfa með fólki og virðing fyrir ólíkum þörfum og aðstæðum.
  • Góð samskiptahæfni og færni til að takast á við krefjandi aðstæður.
  • Sveigjanleiki, þolinmæði og útsjónarsemi.
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Þekking og reynsla af starfi með fólki er kostur en ekki skilyrði.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Starfshlutfall og vinnutími

Starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi. Unnið er á vöktum á daginn, kvöldin, um helgar og nætur.

Reykjavíkurborg býður fjölbreytt starfsmannahlunnindi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Nánari upplýsingar veitir Anna Brynja Valmundsdóttir í netfanginu Anna.Brynja.Valmundsdottir@reykjavik.is.

Apply