Back to the jobs page

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir

Óskað er eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til starfa á Droplaugarstaði hjúkrunarheimili.

Unnið er í vaktavinnu, starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag.  

Fullt starf Droplaugarstaðir 105
Apply

Droplaugarstaðir er Eden vottað hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.

Droplaugarstaðir eru með virkt gæðakerfi og fengu ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.

Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.

Íbúar eru 84 á 4 deildum, allir búa í sérbýli með baðherbergi. Á Droplaugarstöðum er lítil sérhæfð MND deild með einungis fjóra íbúa þar sem veitt er sérhæfð þjónusta í einstöku starfsumhverfi. 

Við erum staðsett í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.

Við bjóðum upp á

  • Gæðavottað starfsumhverfi
  • Krefjandi og spennandi verkefni
  • Skemmtilegan og faglegan starfsmannahóp
  • Heimilislegt vinnuumhverfi
  • Starfshlutfall og fyrirkomulag samkomulagsatriði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipuleggur og metur hjúkrunarþörf íbúa.
  • Sinnir og ber ábyrgð á almennum hjúkrunarverkefnum skv. hjúkrunaráætlun íbúa
  • Vinnum samkvæmt markmiðum, hugmyndafræði og gæðastefnu heimilisins
  • Vinnur samkvæmt gæðakerfi Droplaugarstaða

Hæfniskröfur

  • Hjúkrunarfræðingur með íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Íslenskukunnátta á stig C1 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi, þolinmæði og jákvætt viðhorf
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Hlunnindi í starfi

  • Reykjavíkurkort (sund/menningar og bókasafnskort)
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Samgöngusamningur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Ösp Sumarliðadóttir. Netfang Sigridur.Osp.Sumarlidadottir@reykjavik.is

Apply