Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir
Óskað er eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til starfa á Droplaugarstaði hjúkrunarheimili.
Unnið er í vaktavinnu, starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag.
Droplaugarstaðir er Eden vottað hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.
Droplaugarstaðir eru með virkt gæðakerfi og fengu ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.
Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.
Íbúar eru 84 á 4 deildum, allir búa í sérbýli með baðherbergi. Á Droplaugarstöðum er lítil sérhæfð MND deild með einungis fjóra íbúa þar sem veitt er sérhæfð þjónusta í einstöku starfsumhverfi.
Við erum staðsett í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.
Við bjóðum upp á
- Gæðavottað starfsumhverfi
- Krefjandi og spennandi verkefni
- Skemmtilegan og faglegan starfsmannahóp
- Heimilislegt vinnuumhverfi
- Starfshlutfall og fyrirkomulag samkomulagsatriði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggur og metur hjúkrunarþörf íbúa.
- Sinnir og ber ábyrgð á almennum hjúkrunarverkefnum skv. hjúkrunaráætlun íbúa
- Vinnum samkvæmt markmiðum, hugmyndafræði og gæðastefnu heimilisins
- Vinnur samkvæmt gæðakerfi Droplaugarstaða
Hæfniskröfur
- Hjúkrunarfræðingur með íslenskt hjúkrunarleyfi
- Íslenskukunnátta á stig C1 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi, þolinmæði og jákvætt viðhorf
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Hlunnindi í starfi
- Reykjavíkurkort (sund/menningar og bókasafnskort)
- Líkamsræktarstyrkur
- Samgöngusamningur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Ösp Sumarliðadóttir. Netfang Sigridur.Osp.Sumarlidadottir@reykjavik.is