Eftirlitsverkstjóri
Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu leitar að röskum og lausnamiðuðum einstaklingi til að sinna eftirliti með skóla- og leikskólalóðum.
Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu leitar að röskum og lausnamiðuðum einstaklingi til að sinna eftirliti með skóla- og leikskólalóðum. Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu ber ábyrgð á öllum verklegum framkvæmdum sem tengjast mannvirkjum Reykjavikurborgar, húseignum hennar, gatnakerfi og opnum svæðum. Í því felst uppbygging þeirra og viðhald.
Starfsmaður sinnir eftirlits- og öryggisstörfum í umboði deildarstjóra, m.a. í tengslum við eftirlit með skóla- og leiksskólalóðum, ástandsskoðun og eftirlit með öryggi leiktækja og lóða.
Starfssvið og ábyrgð
- Eftirlit með ástandi og öryggi skóla- og leikskólalóða.
- Ástandsskoðun og eftirlit með öryggi leiktækja.
- Taka þátt í vinnu við gerð áhættumats og fara eftir því er varða skóla- og leiksskólalóðir.
- Hálkuvarnir og aðgengi.
- Taka við ábendingum og koma þeim í réttan farveg.
- Þátttaka í áætlanagerð og skrifa ástandsskýrslur í samvinnu við deildarstjóra.
- Almennt eftirlit í borgarlandi er varðar eignir í umsjón SFF.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hagnýt menntun sem nýtist í starfi, svo sem iðnmenntun eða sambærileg menntun.
- Haldbær reynsla af starfssviði er kostur.
- Frumkvæði, verkvit, þjónustulund og árangursdrifin hugsun.
- Góð skipulagsfærni.
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
- Almenn færni í notkun á algengum hugbúnaði sem tengist skrifstofustörfum.
- Íslenskukunnátta B2 og enskukunnátta B1 í samræmi við samevrópska tungumálarammann
- Almenn ökuréttindi.
Nánar um starfið
- Starfið tilheyrir deild gatna, lóða og opinna svæða og næsti yfirmaður er Rúnar Gísli Valdimarsson deildarstjóri.
- Á umhverfis- og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem auðga mannlíf í Reykjavík. Leiðarljós sviðsins eru aukin lífsgæði með framúrskarandi þjónustu og metnaði fyrir enn betri borg. Starfsfólk sviðsins gegnir lykilhlutverki með fagþekkingu sinni og framlagi að þróun öruggrar, sjálfbærrar og aðlaðandi borgar.
- Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
- Nánari upplýsingar veitir Rúnar Gísli Valdimarsson deildarstjóri Runar.Gisli.Valdimarsson@reykjavik.is.
- Umsóknarfrestur er til og með 21. oktober 2026.