Til baka á starfasíðu

Eftirlitsverkstjóri

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu leitar að röskum og lausnamiðuðum einstaklingi til að sinna eftirliti með skóla- og leikskólalóðum. 

Fullt starf Götur, lóðir, opin svæði 105
Sækja um

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu leitar að röskum og lausnamiðuðum einstaklingi til að sinna eftirliti með skóla- og leikskólalóðum. Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu ber ábyrgð á öllum verklegum framkvæmdum sem tengjast mannvirkjum Reykjavikurborgar, húseignum hennar, gatnakerfi og opnum svæðum. Í því felst uppbygging þeirra og viðhald.

Starfsmaður sinnir eftirlits- og öryggisstörfum í umboði deildarstjóra, m.a. í tengslum við eftirlit með skóla- og leiksskólalóðum, ástandsskoðun og eftirlit með öryggi leiktækja og lóða. 

Starfssvið og ábyrgð

  • Eftirlit með ástandi og öryggi skóla- og leikskólalóða.
  • Ástandsskoðun og eftirlit með öryggi leiktækja.
  • Taka þátt í vinnu við gerð áhættumats og fara eftir því er varða skóla- og leiksskólalóðir.
  • Hálkuvarnir og aðgengi.
  • Taka við ábendingum og koma þeim í réttan farveg.
  • Þátttaka í áætlanagerð og skrifa ástandsskýrslur í samvinnu við deildarstjóra.
  • Almennt eftirlit í borgarlandi er varðar eignir í umsjón SFF.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Hagnýt menntun sem nýtist í starfi, svo sem iðnmenntun eða sambærileg menntun.
  • Haldbær reynsla af starfssviði er kostur.
  • Frumkvæði, verkvit, þjónustulund og árangursdrifin hugsun.
  • Góð skipulagsfærni.
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
  • Almenn færni í notkun á algengum hugbúnaði sem tengist skrifstofustörfum.
  • Íslenskukunnátta B2 og enskukunnátta B1 í samræmi við samevrópska tungumálarammann
  • Almenn ökuréttindi.

Nánar um starfið

  • Starfið tilheyrir deild gatna, lóða og opinna svæða og næsti yfirmaður er Rúnar Gísli Valdimarsson deildarstjóri.
  • Á umhverfis- og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem auðga mannlíf í Reykjavík. Leiðarljós sviðsins eru aukin lífsgæði með framúrskarandi þjónustu og metnaði fyrir enn betri borg. Starfsfólk sviðsins gegnir lykilhlutverki með fagþekkingu sinni og framlagi að þróun öruggrar, sjálfbærrar og aðlaðandi borgar.
  • Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
  • Nánari upplýsingar veitir Rúnar Gísli Valdimarsson deildarstjóri Runar.Gisli.Valdimarsson@reykjavik.is.
  • Umsóknarfrestur er til og með 21. oktober 2026.
Sækja um