Leikskólakennari - Reynisholt
Leikskólakennari eða starfsmaður með sambærilega menntun óskast til starfa á leikskólanum Reynisholt.
Leikskólakennari eða starfsmaður með sambærilega menntun óskast í um 100% starf á leikskólann Reynisholt. Við erum staðsett í Grafarholti, Gvendargeisla 13, 113 Reykjavik.
Lögð er áhersla á lífsleikninám í gegnum snertingu, jóga, umhverfismennt og bernskulæsi.
Í Reynisholti dvelja samtímis 80 börn á fjórum deildum.
Kjörorð leikskólans eru fagmennska, virðing og vellíðan.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun æskileg eða önnur sambærileg menntun
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
- Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika
- sundkort
- menningarkort
- Árlegur heilsustyrkur eftir 6 mán. í starfi
- afsláttur af dvalargjaldi
- samgöngusamningur
- frír hádegismatur
- forgangur í leikskóla.
Laun samkvæmt samningi Kennarasambandi Íslands v/ Félags leikskólakennara eða viðkomandi stéttarfélag
Starfið er laust strax.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Júlíana Sveinsdóttir í síma 411-6632 eða í tölvupósti elin.juliana.sveinsdottir@reykjavik.is
Nánari upplýsingar um leikskólann eru á heimasíðu leikskólans Reynisholts