Back to the jobs page

Deildarstjóri óskast í leikskólann Björtuhlíð í afleysingu í eitt ár frá 1. nóvember

Leikskólinn Bjartahlíð óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum deildarstjóra á yngstu deild leikskólans, í tímabundna afleysingu í eitt ár. Við leitum að einstaklingi sem býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur áhuga og færni til að leiða faglegt og skapandi leikskólastarf í samstarfi við samhentan stjórnendahóp. 

Fullt starf Leikskólinn Bjartahlíð 105
Apply

Bjartahlíð er sex deilda leikskóli sem starfar í tveimur húsum í Hlíðahverfi. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Reggio Emilia og leggur mikla áherslu á sköpun, gleði og samvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að menntun og uppeldi leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á starfi deildarinnar.
  • Veitir faglega forystu og leiðsögn til starfsfólks deildarinnar.
  • Ber ábyrgð á að unnið sé í samræmi við skólanámskrá og stefnu leikskólans.
  • Ber ábyrgð á góðum samskiptum og samstarfi við foreldra.
  • Tekur virkan þátt í samstarfi stjórnendateymis leikskólans.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara er æskilegt. Önnur uppeldismenntun sem nýtist í starfi kemur einnig til greina.
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði. B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum.
  • Áhugi á að þróa og leiða skapandi leikskólastarf í anda Reggio Emilia.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði, jákvæðni og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð, skipulögð og sveigjanleg vinnubrögð.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi:

  • Stytting vinnuvikunnar, 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.
  • Sundkort, ókeypis aðgang að öllum sundlaugum Reykjavíkurborgar.
  • Menningarkort sem veitir ókeypis aðgang að söfnum borgarinnar.
  • Samgöngustyrkur.
  • Líkamsræktarstyrkur.
  • Frítt fæði sem boðið er uppá á matartímum skólans.
  • Starfsmannaafsláttur af leikskólagjöldum fyrir starfsmenn Reykjavíkurborgar.

Um er að ræða 100% tímabundið starf í eitt ár frá 1. nóvember. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og afrit af leyfisbréfi kennara ef við á. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Rakel Ólafsdóttir, leikskólastjóri, í síma 411 3600 eða með tölvupósti á bjartahlid@reykjavik.is

Apply