Back to the jobs page

Barnavernd Reykjavíkur - Eftirlit

Barnavernd Reykjavíkur auglýsir eftir starfsmanni í eftirlit Barnaverndar.

Eftirlit sinnir t.a.m. eftirliti í umgengni með börnum sem vistuð eru á vegum barnaverndarnefndar, útköllum með ráðgjöfum og eftirliti með heimilum fjölskyldna sem njóta stuðnings Barnaverndar Reykjavíkur.

Hlutastarf Reykjavíkurborg
Apply

Barnavernd Reykjavíkur auglýsir eftir starfsmanni í eftirlit Barnaverndar.

Eftirlit sinnir t.a.m. eftirliti í umgengni með börnum sem vistuð eru á vegum barnaverndarnefndar, útköllum með ráðgjöfum og eftirliti með heimilum fjölskyldna sem njóta stuðnings Barnaverndar Reykjavíkur.

Eftirlitsaðilar vinna tveir og tveir saman á vöktum alla daga vikunnar. Unnið er í nokkra daga og hvíld í nokkra daga. Um er að ræða 80% og 65% störf. Starfsmenn hafa bifreið til umráða á vinnutíma.

Leitað er að heiðarlegum, nærgætnum og úrræðagóðum starfsmönnum sem eru tilbúnir að fást við krefjandi verkefni í samvinnu við ráðgjafa Barnaverndar Reykjavíkur.

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Eftirlit í umgengni, útköll, og eftirlit með heimilum
  • Mat á aðstæðum og skráningar í málaskrárkerfi Barnaverndar Reykjavíkur
  • Stuðningur og aðstoð við ráðgjafa Barnaverndar Reykjavíkur

Menntunar - og hæfniskröfur

  • Reynsla og þekking á starfsemi barnaverndar er æskileg
  • Góð almenn menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af löggæslu er kostur
  • Reynsla og þekking af vinnu með börnum og/eða fólki með neysluvanda eða geðrænan vanda er kostur
  • Færni í rituðu máli
  • Framúrskarandi lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
  • Ökuréttindi
  • Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Frekari upplýsingar um starfið veitir 

Heiða Hraunberg Þorleifsdóttir í síma 411-9200 eða tölvupósti heida.hraunberg.thorleifsdottir@reykjavik.is

Apply